Skila ábyrgðinni nú í hendur kirkjunnar 23. júlí 2011 06:00 Stórkostlegt að þessi dagur sé runninn upp segir Sigríður Pálína Ingvarsdóttir, sem í gær gerði sátt við þjóðkirkjuna. Magnús E. Kristjánsson, formaður úrbótanefndar, Pétur Kr. Hafstein, forseti kirkjuþings, og Karl Sigurbjörnsson biskup voru viðstaddir sáttaathöfn í Grensáskirkju. Mynd/Anton Brink
Stefanía Þorgrímsdóttir „Þetta var heilun – ég er frjáls,“ segir Sigrún Pálína Ingvarsdóttir, sem í gær gekk frá sáttagjörð við þjóðkirkjuna vegna meðferðar kirkjunnar í kjölfar ásakana um kynferðisbrot Ólafs Skúlasonar. Ásamt Sigrúnu Pálínu gerði úrbótanefnd kirkjuþings sátt við þær Dagbjörtu Guðmundsdóttur og Stefaníu Þorgrímsdóttur sem einnig báru að séra Ólafur Skúlason hefði brotið gegn þeim kynferðislega. Konurnar fá fimm milljónir króna og Sigrún Pálína eina milljóna króna í útlagðan kostnað að auki vegna „mistaka í málsmeðferð“. Við sáttaathöfn í Grensáskirkju í gær voru viðstaddir aðstandendur kvennanna auk ýmissa fulltrúa kirkjunnar, þar á meðal Karl Sigurbjörnsson biskup sem undirritaði samkomulagið. Við athöfnina fluttu Sigrún Pálína og Stefanía ávörp. Það gerðu einnig Pétur Kr. Hafstein, forseti kirkjuþings, og Magnús E. Kristjánsson, formaður úrbótanefndarinnar. Sigrún Pálína færði þjóðkirkjunni mosavaxinn stein til minningar um áratuga baráttu. „Sannleikurinn getur verið sár en hann sigrar alltaf að lokum og mun gera okkur frjáls,“ er meðal þess sem letrað er á steininn sem ber yfirskriftina Biskupsmálið 1978-2011. Atburðinn sem Sigrún Pálína vísar til segir hún hafa gerst í Bústaðakirkju árið 1978. Þá var Ólafur Skúlason sóknarprestur þar. „Mér finnst stórkostlegt – eftir 33 ára baráttu við að segja sannleikann um hvern mann Ólafur Skúlason hafði að geyma – að þessi dagur sé runninn upp. Ég trúi því og vona að ég geti skilað ábyrgðinni í hendur kirkjunnar og að hún taki við henni. Ég upplifi að kirkjunefndin sé að vinna að þessu af einlægni og að það sé sterkur vilji til að taka ábyrgð á þessu máli og afleiðingunum,“ segir Sigrún Pálína, sem eftir athöfnina færði Stígamótum eina milljón króna að gjöf. Sigrún Pálína sagði sig úr þjóðkirkjunni árið 1996. „Ég er farin að sjá breytingar sem eru það jákvæðar að ég trúi því að einn góðan veðurdag verði mögulegt að ganga í þjóðkirkjuna aftur,“ segir hún. Sigrún Pálína er ósátt við hvernig Karl biskup tók á málum kvennanna. „Hann verður að eiga það við eigin samvisku og sinn guð hvort hann situr eða fer,“ segir hún um viðhorf sitt í dag til séra Karls. Biskupinn segir að í gær hafi verið sáttastund sem marki gleðileg kaflaskil í viðkvæmu og erfiðu máli sem valdið hafi ótal mörgum sársauka. „Ég er þakklátur öllum þeim sem komu að því máli og horfi björtum augum fram á veginn,“ segir Karl Sigurbjörnsson. gar@frettabladid.isDagbjört Guðmundsdóttir
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Innlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Fleiri fréttir Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Sjá meira