Í farbanni til 4. ágúst - barnið fæddist lifandi og heilbrigt 7. júlí 2011 16:16 Hótel Frón við Laugaveg Mynd/Stöð2
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að rannsókn á voveiflegu láti barns, sem fannst í sorpgeymslu við hótel í Reykjavík síðdegis síðastliðinn laugardag, hafi miðað áfram. Í tilkynningu segir að í ljósi þess sem nú liggur fyrir þykja ekki lengur fyrir hendi þau skilyrði sem voru grundvöllur gæsluvarðhaldsúrskurðs héraðsdóms. Hæstiréttur felldi úrskurðinn úr gildi í dag. Konan var úrskurðuð í farbann til 4.ágúst en hún er laus úr haldi lögreglu. Daníel Pálmason, verjandi konunnar, segir í samtali við fréttastofu að farbannsúrskurðinum hafi ekki verið andmælt. „Við sáum ekki ástæðu til að andmæla farbanninu þar sem konan er ekkert á leið úr landi og býr hér,“ segir hann. Rannsókn og bráðabirgðaniðurstaða krufningar þykir benda til þess að barnið hafi fæðst lifandi og heilbrigt, en það hafi látist með voveiflegum hætti og að konan, sem þykir vafalaust hafa fætt það, beri ábyrgð á andláti þess. Eftir það hafi hún sjálf komið því fyrir í sorpgeymslu og allt þetta hafi gerst án þess að aðrir hafi haft eða fengið um það vitneskju. „Kappkostað verður að ljúka rannsókn málsins sem fyrst og senda rannsóknargögn til ríkissaksóknara til ákvörðunar. Í þágu rannsóknar og meðferðar málsins var lögð fram krafa fyrir héraðsdómi Reykjavíkur um það að konan, sem er erlendur ríkisborgari, sæti farbanni sem héraðsdómur hefur fallist á. Þá verður gætt að því í dag að konan fái læknisaðstoð og heilbrigðisþjónustu í samræmi við þarfir sem læknar meta,“ segir í tilkynningunni frá lögreglu.
Mest lesið Hringvegurinn lokaður og viðvaranir í gildi Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Innlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Hringvegurinn lokaður og viðvaranir í gildi Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Sjá meira