Loðnukvótinn verður aukinn um 125.000 tonn 24. janúar 2011 12:35
Hafrannsóknastofnunin leggur til að leyfilegur hámarksafli á loðnu á yfirstandandi vertíð verði ákveðinn 325 þúsund tonn. Er þetta 125 þúsund tonna aukning frá upphafskvótanum sem gefinn var út í fyrra. Í tilkynningu segir að frá 6. - 22. janúar hafi rannsóknarskipið Árni Friðriksson verið við rannsóknir og mælingar á stærð loðnustofnsins frá Suðausturlandi, norður um og allt að sunnanverðum Vestfjörðum. Útbreiðsla loðnunnar hefur verið könnuð og stærð loðnustofnsins á því svæði verið mæld. Fyrstu dagana komu jafnframt 5 veiðiskip að því að kanna útbreiðslu loðnunnar út af Austfjörðum og Norðurlandi. Útreikningar á stærð veiðistofnsins sem byggja á þessum mælingum sýna að alls mældust 720 þúsund tonn af kynþroska loðnu. Áður en ofangreind mæling fór fram er áætlað að veidd hafi verið rúm 5 þús. tonn af loðnu og því er áætluð stærð stofnsins nú, að meðtöldum þeim afla um 725 þúsund tonn. Eins og kunnugt er var stærð stofnsins mæld rúm 600 þús. tonn dagana 24. september til 8. nóvember 2010. Í kjölfar þeirrar mælingar lagði Hafrannsóknastofnunin til við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið að leyfilegur hámarksafli á vertíðinni 2010/2011 yrði ákveðinn 200 þúsund tonn. Í ljósi þess að gildandi aflaregla gerir ráð fyrir að 400 þúsund tonn séu skilin eftir til hrygningar og á grundvelli ofangreindra mælinga í janúar 2011 leggur Hafrannsóknastofnunin til að leyfilegur hámarksafli á vertíðinni 2010/2011 verði ákveðinn 325 þúsund tonn. Er það 125 þúsund tonna aukning frá fyrri tillögu.
Tengdar fréttir Aukin loðna er yfir 5 milljarða búbót fyrir Ísland Aukinn loðnukvóti upp á 125.000 tonn gefur þjóðarbúinu yfir 5 milljarða kr. í auknar útflutningstekjur. Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum segir að kvótaaukningin sé mikil búbót fyrir útgerðina. 24. janúar 2011 13:11 Mest lesið Leigubílstjóri jók hraðann á rauðu ljósi og ók á eldri konu Innlent Harður árekstur á Reykjanesbraut Innlent Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Erlent Önnur stúlka grunuð um að hafa sparkað ítrekað í hana Innlent „Áreiðanlegar upplýsingar“ um að Sindri sé í varðhaldi Innlent Kveður eftir ævilangt starf Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Sjálfstæðisflokkur tekur Framsókn með sér í meirihluta Innlent Sögðust ekki ætla að setja börn í lokað búsetuúrræði en nú er tónninn annar Innlent Segir hægrið sækja fram gegn náttúruvernd og mannréttindum Innlent Fleiri fréttir „Þetta er bara alveg svívirðilegt“ Tilkynnt í annarlegu ástandi og reyndist vera á stolnum bíl Kærðir fyrir að aka á nagladekkjum Harður árekstur á Reykjanesbraut Fjármálastjórinn verður sveitarstjóri Bjóða bæjarbúum á bakgarðstónleika Segir hægrið sækja fram gegn náttúruvernd og mannréttindum Leigubílstjóri jók hraðann á rauðu ljósi og ók á eldri konu Ásta endurráðin í Bláskógabyggð Þyrlan kölluð út vegna bílveltu Sjálfstæðisflokkur tekur Framsókn með sér í meirihluta Sögðust ekki ætla að setja börn í lokað búsetuúrræði en nú er tónninn annar Áhyggjur Barnaheilla, veikindi prinsessu og sjómannadagur Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Grunaður um fíkniefnabrot á reynslulausn og neitaði að gefa upp nafn Önnur stúlka grunuð um að hafa sparkað ítrekað í hana Kveður eftir ævilangt starf Styrkja fjarskiptainnviði vegna almyrkvans en ítreka forgang 112 Nærbuxur í sundi landlægt vandamál Sérsveitaraðgerð á Akureyri Fólskuleg árás og óvinsæl sundtíska Furðulegum fiskum, hetjum hafsins og brunabangsa bregður fyrir um helgina Guðlaug skipuð skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja „Áreiðanlegar upplýsingar“ um að Sindri sé í varðhaldi Vill gera stjórnvöldum heimilt að synja beiðni um nafnbreytingu Endurbætur kostuðu 415 milljónir: Veggfóður fyrir nítján milljónir og ljós fyrir ellefu FÍA hvetur flugmenn til að hlaupa undir bagga og styðja við Icelandair Mogginn afþakkar framlag Dags B. Sendi frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar Ætlar að synda niður Lagarfljót fyrstur manna Sjá meira
Aukin loðna er yfir 5 milljarða búbót fyrir Ísland Aukinn loðnukvóti upp á 125.000 tonn gefur þjóðarbúinu yfir 5 milljarða kr. í auknar útflutningstekjur. Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum segir að kvótaaukningin sé mikil búbót fyrir útgerðina. 24. janúar 2011 13:11