Pau Gasol og Dirk Nowitzki mætast í dag á EM í körfu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. september 2011 10:45 Nowitzki og Gasol eigast hér við í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í vor. Mynd/Nordic Photos/Getty
Keppni í milliriðlum á EM í körfubolta í Litháen hefst í dag og bíða margir spenntir eftir fyrsta leik dagsins þar sem mætast Evrópumeistarar Spánverjar og Þýskaland sem hefur innanborðs einn allra besta körfuboltamann heims. Pau Gasol hefur farið á kostum með spænska landsliðinu til þessa í keppninni en er væntanlega ekki búinn að gleyma því þegar Dirk Nowitzki og félagar í Dallas Mavericks sópuðu Los Angeles Lakers út úr undanúrslitum Vesturdeildarinnar í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í ár. Nowitzki fór síðan alla leið með Dallas-liðinu og varð NBA-meistari í fyrsta sinn á ferlinum. Nowitzki var kosinn besti leikmaður úrslitanna. Pau Gasol var með 21,8 stig og 5,5 fráköst að meðaltali á 25,3 mínútum í riðlakeppninni en hann hitti þar úr 65,3 prósent skota sinna. Dirk Nowitzki var með 20.4 stig og 6,0 fráköst að meðaltali á 27,4 mínútum í riðlakeppninni og hitti úr 49,3 prósent skota sinna og 92,6 prósent vítanna. Þrjú lið fóru upp úr hverjum riðli og spila saman í tveimur sex liða milliriðlum. Liðin munu leika gegn þeim þjóðum sem voru ekki með þeim í riðli og leika því öll liðin þrjá leiki. Spánverjar munu sem dæmi leika gegn Þýskalandi, Serbíu og Frakklandi en Þjóðverjar mæta Tyrklandi og Litháen auk Spánar. Þau lið sem verða í efstu fjórum sætunum í hvorum milliriðli fara áfram í átta liða úrslitin sem hefjast 14. september.Fyrstu leikirnir í milliriðlum í dag: (íslenskur tími)Milliriðill 1 Þýskaland-Spánn kl. 12.30 Tyrkland-Frakkland kl. 15.00 Serbía-Litháen kl. 18.00
Körfubolti Mest lesið Þegar náttúran kallar í miðjum klíðum Sport Fannst látinn í hótelherbergi sínu Sport Hélt áfram að keppa þótt að kærastan lægi meðvitundarlaus í gólfinu Sport Rekinn sextán mánuðum eftir skandalinn Formúla 1 „Heimskuleg spurning og dónaleg“ Fótbolti „Áður en ég yfirgef þennan heim vil ég stjórna Íslandi” Fótbolti Landsliðskona tryggir sér 993 milljóna skósamning Fótbolti Staðfestir eina breytingu á byrjunarliðinu í leiknum á morgun Fótbolti Sláandi tölfræði Sveindísar: Eitt skot á markið á 419 mínútum á EM Fótbolti Ein stærsta stjarna NFL fær að heyra það: Þú ert feitur Sport Fleiri fréttir Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Sjá meira