Íþróttaárið 2011 í máli og myndum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. desember 2011 06:00 Mynd/Pjetur
Fréttablaðið hefur tekið saman nokkrar skemmtilegar myndir frá spennandi og líflegu íþróttaári en þetta eru bæði myndir frá afrekum hér heima og erlendis. Á myndum má finn stelpurnar okkar sem stóðu sig vel bæði í fótboltanum og handboltanum sem og strákana okkar sem náðu sjötta sætinu á HM í Svíþjóð. Íslandsmeistaraliðin í þremur stærstu boltagreinunum eiga sinn fulltrúa á þessum myndum sem og það íþróttafólk okkar sem náði bestum árangri á erlendri grundu. Það er líka af nóg að taka frá íþróttafrekum utan landssteinanna og er hér aðeins stiklað á stóru. Myndirnar má sjá í albúminu hér að neðan. Hægt er að sjá myndirnar stærri með því að smella á þær.Ólafur Björn Loftsson varð fyrsti Íslendinguirnn sem tekur þátt í móti á PGA-mótaröðinni í golfi.PjeturJakob Sigurðarson og Hlynur Bæringsson voru mennirnir á bak við sigur Sundsvall Dragons í sænsku úrvalsdeildinni.Japan varð heimsmeistari kvenna í fótbolta í sumar.Íslendingaliðið Kiel vann 18 fyrstu leikina á nýju tímabili og setti met. Alfreð Gíslason og Aron Pálmarsson höfðu yfir nógu að fagna.Björgvin Páll Gústavsson og félagar í handboltalandsliðinu náði 6. sæti á HM í Svíþjóð þrátt fyrir að tapa síðustu 4 leikjum sínum.ValliAaron Rodgers átti frábært ár með Green Bay Packers í ameríska fótboltanum.Keflavík vann þrefalt í kvennakörfunni og Pálína Gunnlaugsdóttir var valin best í úrslitakeppninni.ValliValskonur vörðu Íslandsmeistaratitilinn í kvennahandboltanum og töpuðu bara einum leik á árinu 2011 sem var reyndar bikarúrslitaleikurinn á móti Fram.DaníelCarlos Tevez: Fyrstur hjá Manchester City til að lyfta bikar í 35 ár í maí en neitaði síðan að fara inná í september.Lionel Messi: Besti knattspyrnumaður heims varð enn betri á árinu og vann fimm titla með Barcelona.Mancehster United sló met Liverpool og varð Englandsmeistari í 19. sinn. Paul Scholes, Alex Ferguson og Ryan Giggs voru ekki að handleika bikarinn í fyrsta sinn.Dirk Nowitzki og Dallas Mavericks urðu NBA-meistarar í fyrsta sinn.Tryggvi Guðmundsson lenti í ýmsum skakkaföllum sumar en tókst samt að jafna markamet Inga Björns Albertssonar.HAGKári Steinn Karlsson sló í gegn í sínu fyrsta maraþonhlaupi sem fram fór í Berlín.StefánUsain Bolt kann að leika sér fyrir framan myndavélarnar. Hann klúðraði 100 metra hlaupinu á HM í frjálsum en vann 200 metranan af öryggi.Stjörnukonur urðu Íslandsmeistarar í fyrsta sinn í kvennafótboltanum og enduðu fimm ára sigurgöngu Vals. Anna Björk Kristjánsdóttir og Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir áttu báðar frábært tímabil.DaníelKvennalandsliðið náði 2. sætinu í Algarve-bikarnum og vann sögulega sigra.DaníelKR varð Íslandsmeistari karla í fótbolta í fyrsta sinn síðan 2003 og tók líka bikarinn. Kjartan Henry Finnbogason, markahæsti leikmaður liðsins, með Íslandsbikarinn.DaníelSvíinn Lars Lagerbäck var ráðinn sem A-landsliðsþjálfari karla og það var létt yfir mönnum á blaðamannafundi.VilhelmÁsdís Hjálmsdóttir stóð sig best Íslendinga á HM í frjálsum.AntonHeiðar Helguson skoraði 13 mörk í b-deildinni og hjálpaði QPR að komast upp og hélt síðan áfram að raða inn mörkum þegar hann fékk tækifærið í ensku úrvalsdeildinni. Búinn að skora 7 mörk í fyrstu 12 leikjunum.Kvennalandsliðið í handbolta náði tólfta sætinu á sínu fyrsta Heimsmeistaramóti sem fór fram í Brasilíu. Stelpurnar unnu Svartfjallaland, Þýskaland og Kína á mótinu.PjeturÞórir Hergeirsson gerði norska kvennalandsliðið í handbolta að Heimsmeisturum í Brasilíu í desember.Fernando Torres og David Luiz voru keyptir fyrir stórfé en áttu erfitt fyrsta ár hjá Chelsea.Caroline Wozniacki endaði árið í efsta sæti heimslistans í tennis og sem hluti af heitasta íþróttapari heims með kylfingnum Rory McIlroy.Kolbeinn Sigþórsson átti frábært ár sem endaði ekki vel. Skoraði 11 mörk fyrir AZ Alkmaar á árinu þar á meðal 5 í einum leik á móti VVV-Venlo og skoraði síðan 5 mörk í 8 leikjum með Ajax sem keypti hann í sumar. Fótbrotnaði í októberbyrjun.Vísir/GettyKR varð Íslands-meistari karla í körfu ekki síst fyrir frammistöðu Marcus Walker.AntonFH-ingar urðu Íslandsmeistarar í handbolta karla í sextánda sinn en jafnframt í fyrsta sinn í 19 ár.HAG
Erlendar Innlendar Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Íslenski boltinn FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Leik lokið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Miklu sterkari í lokin Körfubolti Stólpagrín gert að „nasistamerki“ Fálkanna Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Fleiri fréttir Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin Leik lokið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Miklu sterkari í lokin „Þetta er bara ólýsanlegt” Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Nottingham Forest endaði taphrinuna FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Uppgjörið: Sindri-Tindastóll 71-78 | Frábær vörn Stólanna í lokin Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Valsmenn með þriðja sigurinn í röð Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Mark dæmt af Ronaldo og mark tekið af honum líka Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Matthías í stað Viktors við hlið Sölva Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Úrvalsdeildin í pílu hefst á morgun Caroline tekur við af Donna með EM-landsliðið Er staða Alexander-Arnold innan liðsins að versna? Öll börn eigi að fá að vera hluti af liðinu „Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Af hverju fékk Veigar Páll eins árs dóm og hvort fellur KA eða Þór? HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Conte þverneitar sögusögnum um samningsviðræður Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Stólpagrín gert að „nasistamerki“ Fálkanna Sjá meira