Ákvörðun Ögmundar vekur spurningar um ríkisstjórnarsamstarfið 25. nóvember 2011 18:10
Árni Páll Árnason efnahags- og viðskiptaráðherra segir að ákvörðun Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra um að hafna beiðni Huangs Nubo um að kaupa Grímsstaði á Fjöllum veki „óhjákvæmilega spurningar um ríkisstjórnarsamstarf Samfylkingar og Vinstri Grænna." Þetta kemur fram í pistli á heimasíðu ráðherrans þar sem segir að Vinstri Grænum virðist „finnast það sjálfsagt mál að skrifa upp á stjórnarsáttmála og stefnumörkun um mikilvægi erlendrar fjárfestingar, en mæta svo öllum erlendum fjárfestingaráformum með tortryggni og með því að gera einstökum fjárfestum ávallt upp annarleg sjónarmið." Árni Páll segir að öllu virðist tjaldað til og að tilgangurinn helgi meðalið. „Í fyrra sætti Magma fordæmingu fyrir að hafa stofnað skúffufyrirtæki um fjárfestingu á Íslandi en í dag er höfuðrökstuðningur fyrir synjun innanríkisráðherra sá að félag í eigu Nubo sé ekki skráð á Evrópska efnahagssvæðinu. Skilaboðin til erlendra fjárfesta eru skýr: Öllu verður snúið á haus til að verjast erlendri fjárfestingu." Ráðherrann segir að í minnisblaði sem hann sendi innanríkisráðherra hafi ítarlega verið rakið hversu mikilvæg erlend fjárfesting væri fyrir íslenskt efnahagslíf. „Þjóðin er ung og þarf erlent fé. Undanfarna áratugi höfum við byggt alfarið á lánsfé, með hörmulegum afleiðingum. Hrunið hefur kennt okkur að velsæld verður ekki byggð á lánsfé. Þess vegna er erlend fjárfesting nauðsynleg, óháð því hvort Nubo kemur eða fer." Árni segir ennfremur að staða efnahagsmála sé sérstaklega viðkvæm nú, „þar sem boginn var spenntur til hins ítrasta með gerð kjarasamninga á liðnu vori, þar sem samið var um kjarabætur umfram það sem efnahagslífið stendur nú undir og miklar byrðar lagðar á ríkissjóð. Lélegur gangur í nýfjárfestingu frá gerð þeirra er að valda því að allar líkur eru á að ávinningur af gerð kjarasamninganna verði lítill sem enginn og kauphækkanir brenni upp í verðbólgu að vanda. Einstök fjárfestingaráform hafa því miður oftar en ekki strandað á ríkinu." Ennfremur segir Árni Páll að ríkisstjórnin hafi verið mynduð um „efnahagslegan stöðugleika, endurreisn og opið hagkerfi og hlýtur að standa við þau markmið." „Ríkisstjórn undir forystu jafnaðarmanna getur ekki elt sérhagsmuni á kostnað almannahagsmuna né borið ábyrgð á skilaboðum til umheimsins um lokun landsins og ómálefnalegar hindranir viðskipta. Raunsæi í efnahagsmálum er skylda okkar allra hvar í flokki sem við stöndum," bætir hann við og spyr að lokum: „Er það virkilega þannig að versta efnahagskreppa í 80 ár dugi ekki til að Íslendingar breyti um takt? Er okkur ómögulegt að sameinast um brýnustu verkefnin á sviði efnahagsmála? Getum við ekki kvatt átakastjórnmál gærdagsins?"
Tengdar fréttir Ögmundur hafnaði Nubo Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, neitaði að Huang Nubo að kaupa jörðina á Grímsstöðum á Fjöllum. Hann tilkynnti þetta á ríkisstjórnarfundi í dag. 25. nóvember 2011 12:50 Ögmundur vill banna öllum útlendingum að fjárfesta á Íslandi Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir að hann vilji skoða það, að setja skorður við öllum fjárfestingum útlendinga hér á landi, líka þeim sem búa innan hins evrópska efnahagssvæðis. 25. nóvember 2011 17:16 Jóhanna Sigurðardóttir: Ákvörðun Ögmundar vonbrigði "Þessi ákvörðun er tekin út frá mjög þröngri lagatúlkun,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, um ákvörðun Ögmundar Jónassonar, innanríkisráðherra, um að synja Huang Nubo um leyfi til þess að kaupa jörð á Grímsstöðum á Fjöllum. Ákvörðunin veldur henni vonbrigðum. 25. nóvember 2011 16:06 Fundað um Nubo á ríkisstjórnarfundi Ríkisstjórnarfundur stendur nú yfir í stjórnarráðshúsinu en meðal málefna sem eru á dagskrá, samkvæmt heimildum fréttastofu, er umsókn Kínverjans Huangs Nubo um undaþágu frá lögum um eignarrétt og afnotarétt fasteigna vegna fjárfestingar á jörðinni Grímsstöðum á Fjöllum. 25. nóvember 2011 12:05 Talsmaður Nubo: Maður er eiginlega bara undrandi "Þetta eru vissulega vonbrigði," segir Halldór Jóhannsson, arkitekt og talsmaður Huang Nubos, um ákvörðun innanríkisráðherra að neita eignarhaldsfélagi Nubo að kaupa landið á Grímsstöðum á Fjöllum. 25. nóvember 2011 12:59 Brjáluð ákvörðun - það er verið að girða landið af og loka því "Þetta er brjáluð ákvörðun,“ segir Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar á Norðausturkjördæmi, um ákvörðun Ögmundar Jónassonar, innanríkisráðherra, um að synja Huang Nubo leyfi til þess að kaupa landið á Grímsstöðum á Fjöllum, sem er einmitt í kjördæmi Sigmundar. 25. nóvember 2011 15:21 Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Ný þjónustu- og aðkomubygging við Varmá boðin út Samstarf Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira
Ögmundur hafnaði Nubo Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, neitaði að Huang Nubo að kaupa jörðina á Grímsstöðum á Fjöllum. Hann tilkynnti þetta á ríkisstjórnarfundi í dag. 25. nóvember 2011 12:50
Ögmundur vill banna öllum útlendingum að fjárfesta á Íslandi Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir að hann vilji skoða það, að setja skorður við öllum fjárfestingum útlendinga hér á landi, líka þeim sem búa innan hins evrópska efnahagssvæðis. 25. nóvember 2011 17:16
Jóhanna Sigurðardóttir: Ákvörðun Ögmundar vonbrigði "Þessi ákvörðun er tekin út frá mjög þröngri lagatúlkun,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, um ákvörðun Ögmundar Jónassonar, innanríkisráðherra, um að synja Huang Nubo um leyfi til þess að kaupa jörð á Grímsstöðum á Fjöllum. Ákvörðunin veldur henni vonbrigðum. 25. nóvember 2011 16:06
Fundað um Nubo á ríkisstjórnarfundi Ríkisstjórnarfundur stendur nú yfir í stjórnarráðshúsinu en meðal málefna sem eru á dagskrá, samkvæmt heimildum fréttastofu, er umsókn Kínverjans Huangs Nubo um undaþágu frá lögum um eignarrétt og afnotarétt fasteigna vegna fjárfestingar á jörðinni Grímsstöðum á Fjöllum. 25. nóvember 2011 12:05
Talsmaður Nubo: Maður er eiginlega bara undrandi "Þetta eru vissulega vonbrigði," segir Halldór Jóhannsson, arkitekt og talsmaður Huang Nubos, um ákvörðun innanríkisráðherra að neita eignarhaldsfélagi Nubo að kaupa landið á Grímsstöðum á Fjöllum. 25. nóvember 2011 12:59
Brjáluð ákvörðun - það er verið að girða landið af og loka því "Þetta er brjáluð ákvörðun,“ segir Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar á Norðausturkjördæmi, um ákvörðun Ögmundar Jónassonar, innanríkisráðherra, um að synja Huang Nubo leyfi til þess að kaupa landið á Grímsstöðum á Fjöllum, sem er einmitt í kjördæmi Sigmundar. 25. nóvember 2011 15:21