Frakkar enn ósigraðir - Finnar mæta Rússum í dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. september 2011 11:15 Tony Parker. Mynd/Nordic Photos/Getty
Frakkar héldu sigurgöngu sinni áfram á EM í körfubolta í Litháen í gær þegar þeir unnu 68-64 sigur á Tyrkjum. Frakkar hafa unnið alla sex leiki sína í keppninni til þessa og eru efstir í sínum milliriðli en keppni í hinum milliriðlinum hefst í dag. Tony Parker skoraði 20 stig og gaf 5 stoðsendingar í fjögurra stiga sigri Frakka á Tyrkjum en Frakkar voru nærri því búnir að glutra niður fimmtán stiga froskoti á lokamínútunum. Parker setti niður 7 af 8 vítum sínum á síðustu 18 sekúndunum í leiknum. Litháar rifu sig upp eftir tap á móti Spáni og unnu tíu stiga sigur á Serbum, 100-90. Jonas Valanciunas, sem verður nýliði hjá Toronto Raptors á næsta tímabili í NBA,skoraði 18 stig í leiknum og hitti úr 8 af 9 skotum sínum. Litháar hittu úr 11 af 20 þriggja stiga skotum sínum í leiknum. Mantas Kalnietis skoraði 19 stig og gaf 7 stoðsendingar hjá Litháen og Sarunas Jasikevicius kom með 14 stig og 7 stoðsendingar af bekknum þrátt fyrir að spila bara í 18 mínútur. Nenad Krstick skoraði 21 stig fyrir Serbíu. Frakkar eru efstir í milliriðli eitt með 3 sigra í 3 leikjum, Spánn og Litháen hafa unnið 2 leiki, Serbar og Tyrkir hafa unnið 1 leik en Þjóðverjar eru enn án sigurs. Fjögur efstu liðin komast í átta liða úrslitin. Keppni í hinum milliriðlinum hefst í dag en þar mun Norðurlandameistarar Finna mæta Rússum klukkan 15.00. Rússar hafa ekki enn tapað leik á mótinu en Finnar tryggðu sér sæti í milliriðlinum með sigrum á Bosníu og Svartfjallalandi í þremur síðustu leikjum sínum í riðlinum.Leikir dagsins á EM í körfubolta Makedonía-Georgía 12.30 (að íslenskum tíma) Rússland-Finnland 15.00 Grikkland-Slóvenía 18.00
Körfubolti Mest lesið Guðjóni Val líkt við íslenskt eldfjall eftir eldræðu á blaðamannafundi Handbolti Laun Infantino meira en þrefaldast á áratug Fótbolti Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Enski boltinn Haukur allt í öllu hjá Löwen Handbolti Skellt í lás eftir afhroðið Íslenski boltinn Fanney og Thelma Evrópubikarmeistarar Fótbolti Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Enski boltinn Njarðvíkingar rændir marki og þurfa að bíða lengur eftir sigri Íslenski boltinn Heimsmeistarinn fremstur í sprettinum Formúla 1 Grindavík - Njarðvík 68-72| Njarðvík tryggði sér oddaleik Körfubolti Fleiri fréttir Grindavík - Njarðvík 68-72| Njarðvík tryggði sér oddaleik Tíu stoðsendingar Martins dugðu skammt í toppslagnum Hvergi nærri hættur með KR „Ætla ekkert að hengja þetta bara á þá“ „Höfum beðið eftir þessu alla úrslitakeppnina“ Uppgjörið: Grindavík - Valur 93-67 | Grindvíkingar skelltu í lás Stjörnufólk stendur í ströngu á sunnudaginn Sjáðu fyrirliðann Tryggva taka við Evrópubikarnum „Þetta er smá spooky“ Tvíburar héldu sínum liðum á lífi Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Tryggvi varði Evróputitil með Bilbao Tindastóll - Stjarnan 103-88 | Stólarnir lifa góðu lífi Wembanyama varði skot yfir spjaldið og sendi Portland í sumarfrí Lætur umræðu síðustu daga sem vind um eyru þjóta: „Gullið tækifæri Þórsarar gætu hætt: „Fyrir hvern erum við að standa í þessu starfi?“ Þristur í lokin og Sindri eða Breiðablik í Bónus-deildina Uppgjörið: Haukar - Keflavík 86-70 | Haukar unnu sannfærandi sigur og komust yfir Frank Booker fer yfir hnéskeljarbrotið: „Löppin bara hékk á eftir mér“ Þreföld tvenna Jokic heldur Denver á lífi Rúnar og Logi áfram í Njarðvík næstu tvö árin Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 94-88| Njarðvíkingar berja frá sér KKÍ horfir til framtíðar Hnéskel Franks Arons brotnaði Wembanyama snéri aftur og átti stórleik „Um leið og ég sá hann fara ofan í fór mér að líða betur“ Áfall fyrir Valsmenn: Frank Aron fór sárþjáður af velli Uppgjörið: Valur - Grindavík 79-72 | Baráttuglaðir Valsmenn jöfnuðu einvígið Davíð Tómas skipti um skoðun: „Ég var of fljótur á mér“ Sjá meira