Hefur áhyggjur af úrsögnum úr Þjóðkirkjunni Jón Hákon Halldórssno skrifar 6. júlí 2011 14:06 Karl Sigurbjörnsson segir að allsstaðar á Norðurlöndum hafi fækkað hlutfallslega í Þjóðkirkjunni. Mynd/ GVA.
Það er vissulega ástæða til að hafa áhyggjur af úrsögnum og fækkun í söfnuðum þjóðkirkjunnar. Það er samt ekki séríslenskt fyrirbæri, segir Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands. Hann segir að lls staðar á Norðurlöndunum megi sjá hliðstæða þróun, þar séu þjóðkirkjurnar líka að hopa og það af ýmsum ástæðum, lýðfræðilegum og menningarlegum. Karl segir í pistli á vefnum tru.is að eins og hér á landi megi einnig sjá í þeim úrsögnum viðbrögð við deilum og hneykslismálum innan kirknanna. Tölur sem Þjóðskrá birti í gær sýna að um 6500 manns sögðu sig úr þjóðkirkjunni frá 1. desember árið 2009 til síðustu mánaðarmóta. Tölurnar benda til þess að óánægja með Þjóðkirkjuna vegna viðbragða hennar við kynferðisbrotum Ólafs Skúlasonar, fyrrverandi biskups hafi orðið til þess að fjölga úrsögnum. Karl Sigurbjörnsson biskup segir áhugavert að bera hlutfall þjóðkirkjufólks á Norðurlöndunum saman. Alls staðar hafi það lækkað. „Þjóðfélag og menning, siður og trú er í mikilli deiglu allt í kringum okkur. Og það er áskorun á okkur sem störfum í kirkjunni," segir Karl. Karl segir að það sé afar sorglegt að svo margir segi sig úr þjóðkirkjunni og sömuleiðis mjög miður að fólk beri minna traust til kirkjunnar og biskups hennar. „Ég tek það afar alvarlega, þau öll sem starfa innan kirkjunnar og þau sem líta til hennar um leiðsögn og þjónustu taka það afar alvarlega. Karl segir að um land allt sé kirkjan að vinna mikilvægt mannræktarstarf og mæta fólki í erfiðum aðstæðum með orð og athöfn sem veki von og lífsþrótt. „Mesta áhyggjuefni mitt er að úrsagnir bitni á því starfi. Ég tel að við verðum að hlusta eftir því sem fólk er ósátt við og bæta úr þar sem þarf að bæta. Það er áskorunin. Tökum saman höndum að því verkefni," segir Karl.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kourani farinn úr landi Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Sjá meira