Viðskipti innlent

Kreditkort brýtur gegn lögum um neytendalán

Kreditkort er umboðsaðili MasterCard á Íslandi
Kreditkort er umboðsaðili MasterCard á Íslandi
Greiðsludreifing sem Kreditkort býður upp á brýtur bæði gegn lögum um neytendalán, og lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu með greiðsludreifingunni. Þetta er niðurstaða Neytendastofu en vegna fjölda kvartana frá neytendum tók hún til skoðunar umrædda greiðsludreifingu. Í henni felst að ef neytandi getur ekki greitt kreditkortareikninginn sinn í einu lagi er honum boðið upp á að skipta reikningnum og greiða hann á fleiri en einum gjalddaga.

Neytendastofa gerir ekki athugasemdir við að neytendum sé boðið upp á þessa leið en stofnunin telur greiðsludreifinguna vera neytendalán sem gera verður sjálfstæðan skriflegan samning um þar sem fram kæmu allar þær upplýsingar sem lánveitandi á að veita neytanda samkvæmt lögum um neytendalán.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×