Enski boltinn

Hughes vongóður um að Eiður semji við Fulham

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Eiður Smári í leik með Fulham.
Eiður Smári í leik með Fulham. Nordic Photos / Getty
Mark Hughes, stjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Fulham, segist vera vongóður um að Eiður Smári Guðjohnsen skrifi undir langtímasamning við félagið í náinni framtíð.

Eiður kom til Fulham frá Stoke fyrr í vetur og hefur staðið sig vel undanfarnar vikur, loksins þegar hann hefur fengið tækifæri til að spila.

„Við erum að reyna að fá þetta í gegn,“ er haft eftir Hughes í enska blaðinu Mirror. „Ég er mjög ánægður með það sem Eiður hefur fært okkur og ég veit að hann nýtur sín hjá félaginu.“

Eiður er nú í láni hjá Fulham þar sem hann er samningsbundinn Stoke City.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×