Spólusafn Páls Óskars í Hlemmavídeói 23. október 2010 06:00 Siggi og Kalli Kennedy Pétur Jóhann og Þorsteinn Bachmann í hlutverkum sínum í Hlemmavídeói. Pétur Jóhann leikur fráskilinn mann sem erfir vídeóleigu, Þorsteinn er Kalli Kennedy, verktaki sem eitt sinn rak strippbúllu.Fréttablaðið/Valli
Ný íslensk leikin þáttaröð hefur göngu sína annað kvöld þegar fyrsti þáttur Hlemmavídeós verður sýndur á Stöð 2. Leikstjóri er Styrmir Sigurðsson sem gerði fyrstu Fóstbræðra-þættina, sællar minninga. Hlemmavídeó skartar þeim Pétri Jóhanni Sigfússyni, Ágústu Evu Erlendsdóttur og Vigni Rafni Valþórssyni í aðalhlutverkum. Þættirnir fjalla um hinn fráskilda Sigurð Hermannsson, sem oftast er kallaður Siggi, sem erfði vídeóleigu eftir föður sinn. Hann rekur hana með hálfum huga enda á hann sér þann draum heitastan að verða alvöru einkaspæjari. Með önnur hlutverk í þáttunum fara þau Gunnar Hansson og Sólveig Arnarsdóttir. Það var mikill erill þegar Fréttablaðið bar að garði á tökustað, enda verið að taka upp síðustu þættina á meðan fyrsti þátturinn er í eftirvinnslu og klippingu. Þorsteinn Bachmann og Pétur Jóhann komu sér makindalega fyrir í sófa, komu sér í „karakter“ eins og það heitir á leikaramálinu og tökuvélarnar byrjuðu að rúlla. „Þorsteinn leikur Kalla Kennedy, verktaka sem rak strippbúllu en segist nú vera réttu megin í lífinu. Enda búið að banna stripp í Reykjavík,“ segir Styrmir Sigurðsson leikstjóri. Uppi um alla veggi má sjá gamlar og nýjar vídeó- og DVD-spólur sem Styrmir upplýsir að séu flestar í eigu Páls Óskars Hjálmtýssonar, poppstjörnu Íslands. „Palli hringdi eiginlega bara í okkur um leið og hann frétti af þessum þáttum og bauð okkur afnot af safninu. Þetta var algjörlega skilyrðislaust af hans hálfu, ekkert hlutverk eða neitt þannig, við skyldum bara fara vel með þær,“ segir Styrmir en bætir því við um leið að starfsfólk leikmunadeildarinnar hafi einnig haft í nægu að snúast við að finna hulstur og spólur. Svona verður þetta gert Styrmir, fyrir miðju, gefur Bergsteini Björgúlfssyni tökumanni leiðbeiningar. Pétur Jóhann og Þorsteinn Bachmann hlusta á fyrirmælin. Styrmir er enginn nýgræðingur á sviði gamanþáttaraða þótt hann hafi kannski ekki haft sig mikið í frammi undanfarin ár. Hann leikstýrði fyrstu Fóstbræðraþáttunum sem slógu eftirminnilega í gegn hjá áhorfendum Stöðvar 2. „Ég hef aðallega verið að leikstýra auglýsingum, hef örugglega gert yfir hundrað síðustu ár. Og svo hefur maður bara verið að sýsla við hitt og þetta. Ég, Jón Gnarr og Þorsteinn Guðmundsson erum með kvikmyndahandrit í smíðum þannig að þessi hópur hefur alltaf verið að brölta eitthvað saman.“ Styrmir varar hins vegar fólk við því að vera með hláturtaugarnar þandar fyrir þátt sunnudagsins, hann sé svolítið í dramatískari kantinum. „En svo byrjar ruglið fljótlega upp úr því.“ freyrgigja@frettabladid.is
Lífið Menning Mest lesið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Fleiri fréttir Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Sjá meira