Skrautleg byrjun Sundsvall í tapi á móti Gothia í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. febrúar 2010 20:00 Jakob Örn Sigurðarson var næststigahæstur hjá Sundsvall. Mynd/Vilhelm
Íslendingaliðin Sundsvall Dragons og Solna töpuðu bæði leikjum sínum í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Sundsvall tapaði með 23 stigum á útivelli á móti Gothia en Solna mátti þola naumt tveggja stiga tap á heimavelli á móti Boras. Jakob Örn Sigurðarson og félagar í Sundsvall Dragons mættu eiginlega ekki til leiks fyrr en í öðrum leikhluta þegar þeir voru komnir 30-8 undir í leik sínum á móti Gothia Basket. Heimamenn í Gothia nýttu sér það voru 40-28 yfir í hálfleik og unnu að lokum öruggan sigur, 89-66. Jakob Örn var næstatkvæðamestur í liði Sundsvall með 17 stig, 6 fráköst og 2 stoðsendingar en hann hitti úr 4 af 12 skotum sínum í leiknum þar af 1 af 7 fyrir utan þriggja stiga línuna. Solna tapaði 78-80 á heimavelli á móti Boras þar sem Helgi Már Magnússon kom með 4 stig og 6 fráköst inn af bekknum. Boras-liðið var tíu stigum yfir í hálfleik, 40-30, og var með lengstum með góð tök á leiknum. Solna kom hinsvegar til baka á lokakafla leiksins og náði muninum tvisvar niður í eitt stig á lokamínútu leiksins. Helgi spilaði lokamínútur leiksins, lék alls í 25 mínútur og hitti úr 2 af 5 skotum sínum. Tapleikirnir komu sér illa fyrir lið þeirra Jakobs og Helga í baráttunni á toppnum því Plannja náði fjögurra stiga forustu á Sundsvall í baráttunni um annað sætið og Solna kemur síðan í 4. sætinu sex stigum á eftir Sundsvall.
Körfubolti Mest lesið Gísli gagnrýnir fyrirkomulagið á EM Handbolti Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher Formúla 1 Heilbrigðisráðherra lætur óvin Íslands heyra það Handbolti Danir komnir í undanúrslit en Þjóðverjar þurfa stig gegn Frökkum Handbolti Óvinur Íslands: „Aldrei stríða heilu landi“ Handbolti Stærð sigurs Íslands gegn Svíum veki upp spurningar Handbolti Dramatísk úrslit og vonir beggja liða nánast úr sögunni Handbolti Þetta er ástæða þess að Ísland er í efsta sæti í milliriðlinum Handbolti Ótrúleg saga Viggós rifjuð upp í erlendum miðlum Handbolti Dregur til baka ummæli sín um Gísla Þorgeir Handbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Keflavík - Tindastóll 98-81 | Keflvíkingar skelltu Stólunum „Miklu skemmtilegra að spila körfubolta þegar fólkið er í húsinu“ Martin fagnaði eftir framlengingu Rose hengdur upp í rjáfur í Chicago Danskur landsliðsmaður greindist með krabbamein Sævar um Keflavík: Eins og allir vilji ekki fá brunasár eða marbletti Tryggvi og félagar sluppu með skrekkinn á móti botnliðinu NBA-leik frestað vegna óeirða í Minneapolis Elvar og félagar köstuðu frá sér sigrinum Njarðvík nær í nýjan miðherja eftir meiðslin Körfuboltakvöld: Betra að temja villtan leikmann en að vera með einhverja rolu Uppgjörið KR - Grindavík 93-71 | KR annað liðið til þess að vinna Grindavík Uppgjör: Tindstóll-Njarðvík 113-92 | Stólarnir léku sér að Njarðvíkingum „Of margir sem reyndu að bjarga leiknum“ „Langar að biðja Stólana afsökunar á því sem ég lét út úr mér í síðustu umferð“ Uppgjörið: Keflavík - Ármann 93-102 | Ármenningar unnu í Keflavík Uppgjörið: Álftanes - ÍA 89-83 | Justin James afþiðnaði á réttum tíma Kári: Það koma dalir á hverju tímabili Leik lokið: ÍR - Stjarnan 109-118 | Stjörnumenn áfram á sigurbraut Uppgjörið: Valur - Þór Þ. 80-71 | Valsmenn unnu framlengdan leik Uppgjörið: Njarðvík-Keflavík 88-77 | Danielle og Brittany fóru á kostum Tryggvi og félagar eru áfram með fullt hús í Evrópubikarnum Abby með sigurkörfuna 0,8 sekúndum fyrir leikslok Áfall Njarðvíkur fyrir grannaslag kvöldsins Fyrsta Evróputap Stólanna í Síkinu Fjórði sigur Haukakvenna í röð KR - Valur 66-77 | Valur komst upp fyrir KR eftir sigur í rimmu liðanna Martin stoðsendingahæstur í Evrópusigri Tímabilið búið hjá Butler Aldrei hlegið jafnmikið og við að horfa á Nablann Sjá meira