Innlent

Óttast að ríkisstjórnin sé að setja upp leikrit

Sigríður Mogensen skrifar
Stjórnarandstaðan tekur boði ríkisstjórnarinnar um samráð í atvinnumálum með fyrirvara. Gæti verið leikrit til að lengja líf hennar, segir þingmaður Hreyfingarinnar. Formaður Framsóknarflokksins segir að stefnubreytingu þurfi í atvinnumálum. Ríkisstjórnin vill koma á víðtæku samstarfi í atvinnumálum við stjórnarandstöðuna og aðila vinnumarkaðarins í anda samstarfsins um lausnir á skuldavanda heimilanna.

Til stendur að halda fund með stjórnarandstöðunni á miðvikudag. Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, segir að þingflokkurinn muni að sjálfsögðu mæta á fundinn og vona það besta.

„Ef þetta er í líkingu við samráðið varðandi skuldavandann og lausnir er ég ekkert sérstaklega bjartsýn á að þetta skili neinu þá er þetta leikrit til að lengja líf ríkisstjórnarinnar aðallega," segir Margrét. Hreyfingin hefur sett fram tillögu um myndun neyðarstjórnar og átt fund með forseta Íslands um stöðuna í stjórnmálum landsins.

„Auðvitað vona ég eins og allir Íslendingar að þessi ríkisstjórn eða einhver önnur geti leitt okkur út úr þessu," segir Margrét. Það hefjist ekki nema með samstilltu átaki. „En stundum finnst okkur að það sé frekar verið að óska eftir því að gera okkur samsek en að þetta sé raunverulegt samstarf."

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins segir að hafa verði í huga að ríkisstjórnin hafi getað komið í gegn öllum þeim atvinnumálum sem hún hafi viljað.

„Vandinn er sá að hún hefur ekki verið að koma með nein mál, ekki það sem hefur þurft. Svo spurningin er á þetta að fela í sér stefnubreytingu, það er það sem þarf. Við höfum boðið samstarf og reyndar í mars á þessu ári vorum við með tillögur sem voru mjög líkar því sem forsætisráðherra er að tala um núna, en auðvitað óttast maður í ljósi reynslunnar að þetta eigi að verða enn ein leiksýningin."

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, fagnar samráði um atvinnumál. Hann segir mestu skipta að aflétta gjaldeyrishöftum og koma fjárfestingu í gang.

„Það er leiðin sem við höfum út úr kreppunni, það er að fjárfesta og skapa störf við fjárfestingarnar sjálfar og eins að skapa grundvöll fyrir varanlegum störfum til lengri tíma."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×