Tæp milljón hvarf að næturlagi í Búðardal 10. september 2010 04:30 Samkaup reka verslun og söluskála í þjóðbraut í Búðardal. Eftir lokun á sunnudagskvöld í síðusti viku hurfu tæplega níu hundruð þúsund krónur úr versluninni. Fréttablaðið/Óli Kristján
Tæplega níu hundruð þúsund krónum í peningum var stolið í síðustu viku úr Samkaupum í Búðardal. Engar upplýsingar hafa fengist frá lögreglu um þjófnaðinn. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins hurfu peningarnir úr Samkaupum á tímabilinu frá því eftir lokun seint á sunnudagskvöld þar til verslunin var opnuð að morgni mánudags. Sérstakt er við málið að ekki virðist hafa verið brotist inn heldur hafi þjófurinn einfaldlega hleypt sér inn með lykli. Mikill þagnarhjúpur umlykur málavexti enn sem komið er. Rannsóknardeild lögreglunnar á Akranesi fer með rannsókn málsins en ekki fékkst viðtal við liðsmenn deildarinnar í gærkvöldi. Almennir lögreglumenn sem rætt var við sögðust ekkert geta sagt um framgang rannsóknarinnar. Starfsmaður Samkaupa í Búðardal sagðist sömuleiðis ekkert hafa um málið að segja og vísaði á aðalskrifstofu fyrirtækisins í Reykjanesbæ. „Það er svo margt einkennilegt við þetta. Þess vegna viljum við að lögreglan fái frið til að vinna í málinu,“ segir Ómar Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samkaupa, sem aðspurður játar að um algerlega einstakt mál sé að ræða í sögu Samkaupa. Þar sem svo virðist sem þjófurinn hafi einfaldlega haft lykil að versluninni beinist grunur að þeim sem þar hafa lyklavöld. Málið er því sérstaklega viðkvæmt í svo litlum bæ eins og Búðardalur er. „Allt svona er leiðinlegt í fámenni,“ segir Ómar en bendir um leið á að ekki sé vitað hver þjófurinn sé. „Samgöngur eru góðar og það er mikið af fólki á ferðinni á þjóðvegum þannig að það er ekkert hægt að fullyrða í þessu.“ Ómar segir að peningarnir sem stolið var hafi verið sala helgarinnar. Féð hafi verið geymt í læstu peningahólfi. „Þar sem aðstaða er til, eins og á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri, er náttúrulega verið að nota öryggisþjónustu til peningaflutninga. Á minni stöðum úti á landi er ekki boðið upp á slíkt,“ segir Ómar sem vill ekki svara því hvort peningaþjófurinn hafi sést í eftirlitsmyndavélunum sem eru á staðnum. „Lögreglan er að rannsaka málið og það er best að segja sem minnst á meðan,“ ítrekar hann og útskýrir að ekki sé ástæða til að fjalla um málið í fjölmiðlum á meðan ekki sé vitað hvað gerðist. „Það er spurning hverju það skilar til bæjarbúa á meðan við vitum ekki meira. Þetta er bara ákveðin varkárni hjá okkur.“ gar@frettabladid.is
Mest lesið Loka bandaríska sendiráðinu í Ísrael Erlent Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Innlent Færeyingar vilja fullveldi Erlent Segir stefna í menningarslys á Birkimel Innlent Segist vita hvar klerkurinn feli sig en vilji ekki drepa hann strax Erlent Kærður fyrir að vanvirða íslenska fánann Innlent Ný og glæsileg heilsugæslustöð í Suðurnesjabæ Innlent Trump fundar með þjóðaröryggisráði Erlent Fimmtán sæmdir fálkaorðunni Innlent Skjálfti fannst í Hveragerði Innlent Fleiri fréttir Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Ný og glæsileg heilsugæslustöð í Suðurnesjabæ Segir stefna í menningarslys á Birkimel Kröfur Bandaríkjaforseta, „lágkúruleg“ blokk og hátíðarhöld Skjálfti fannst í Hveragerði Fimmtán sæmdir fálkaorðunni Veðrið setti strik í reikninginn en Lóa öðlast framhaldslíf Einn af hverjum fjórum er erlendur ríkisborgari í atvinnulífinu Hefur leit að nýjum saksóknara Ræða Höllu: Facebookfrí, staða drengja og hatrömm heift Ráðherra um afsögn Helga Magnúsar og hátíðahöld um land allt Katrín Halldóra er fjallkonan í ár Kærður fyrir að vanvirða íslenska fánann Flugfélög með áratuga sögu horfin af markaði Ótækt að íþróttafélögin selji áfengi án leyfis Meðal stærstu skjálfta í Ljósufjallakerfi Guðmundur í Brim hættir hjá SFS Hótelharmleikur, áfengisleyfi í ólagi og hittaramessa Þyrlan á flugi yfir Kópavogi Helgi hafnar flutningi og lætur af embætti „Það er komin aðeins skýrari mynd“ Starfsfólk á kvikmyndasetti Nolan gistir í grunnskóla Þorbjörg Sigríður biður Ingibjörgu Isaksen afsökunar Engar framfarir þrátt fyrir brýningu Loftslagsráðs Íbúar í Kópavogi með öryggismyndavélar hafi samband við lögreglu Kanadískt svifryk hrellir borgarbúa Segir ásakanir SFS um blekkingu og afvegaleiðingu alvarlegar Stofna vinnuhóp til að sporna gegn ofbeldi í garð verslunarmanna Tryggir þjónustu við konur með endómetríósu Teikn á lofti þegar kemur að áfengisneyslu unglinga Sjá meira