Innlent

Sömu brot liggja til grundvallar handtökunum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ólafur Þ. Hauksson segir að menn séu enn að skoða hvort krefjast eigi gæsluvarðhalds yfir Hreiðari Má. Mynd/ Anton.
Ólafur Þ. Hauksson segir að menn séu enn að skoða hvort krefjast eigi gæsluvarðhalds yfir Hreiðari Má. Mynd/ Anton.
Ólafur Hauksson, sérstakur saksóknari, segir það enn ekki vera ákveðið hvort farið verði framá gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Magnúsi Guðmundssyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings í Luxemburg.

Magnús var handtekinn síðdegis í gær og þarf ákvörðun um gæsluvarðhaldskröfu að liggja fyrir innan nokkurra klukkutíma. Ólafur býst við að úrskurður dómara um gæsluvarðhald yfir Hreiðari Má Sigurðssyni liggi fyrir um hádegið. Hann segir að sömu mál liggi að mestu leyti til grunvallar handöku Magnúsar og handtöku Hreiðars Más, en þeir eru meðal annars grunaðir um markaðsmisnotkun.

ÓIafur segist ekki geta sagt til um það hvort fleiri verði yfirheyrðir í dag. Hann þvertekur fyrir að embætti sérstaks saksóknara hafi ráðist í aðgerðir erlendis samhliða handtökunum í gær.






Tengdar fréttir

Magnús Guðmundsson einnig handtekinn

Magnús Guðmundsson, fyrrverandi bankastjóri Kaupþings í Lúxemborg og núverandi forstjóri Banque Havilland, var líkt og Hreiðar már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, handtekinn í dag í tengslum við rannsókn embættis sérstaks saksóknara á málefnum tengdum Kaupþingi.

Hreiðar fluttur í fangaklefa

Yfirheyrslum yfir Hreiðari Má Sigurðssyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings er lokið í bili en hann var á níunda tímanum í kvöld fluttur í fangaklefa í lögreglustöðinni við Hverfisgötu. Eftir að Hreiðar var handtekinn í hádeginu var hann yfirheyrður í húsnæði embættis sérstaks saksóknara við Laugaveg 166.

Skýrslutöku af Magnúsi lokið

Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg, var færður á lögreglustöðina við Hverfisgötu eftir að skýrslutöku lauk rétt fyrir klukkan tíu í kvöld. Magnús og Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, voru handteknir í dag í tengslum við rannsókn sérstaks saksóknara á málefnum tengdum Kaupþingi.

Sérstakur saksóknari handtók Kaupþingsstjórnanda

Sérstakur saksóknari handtók í hádeginu í dag karlmann i tengslum við rannsókn á málefnum Kaupþings. Ekki liggur fyrir að svo stöddu um hvaða einstakling ræðir en samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis er um einn af æðstu stjórnendum gamla bankans að ræða.

Hreiðar gæti átt 8 ára fangelsi yfir höfði sér

Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, gæti átt yfir höfði sér allt að átta ára fangelsi veðri hann fundinn sekur um þau brot sem hann er grunaður um. Sérstakur saksóknari handtók Hreiðar Má í dag eftir skýrslutökur.

Hreiðar kominn til yfirheyrslu

Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, er kominn til yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara.

Annar maður handtekinn

Nú síðdegis handtók sérstakur saksóknari einn mann til viðbótar í tengslum við sömu rannsókn og Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings var handtekinn í dag. Hreiðar er grunaður um fjölmörg brot í starfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×