Mikil hækkun á raforku 30. júní 2010 14:53
Raforkukostnaður hjá meðalheimili hefur hækkað um allt að þriðjung frá því um mitt ár 2008. Miklar hækkanir á fastagjöldum fyrir flutning og dreifingu skýra stærstan hluta hækkananna en þau hafa þau hækkað um allt að 137% á síðustu tveimur árum. Þetta kemur fram á vef ASÍ. Þar kemur fram að rafmagnsreikningurinn hefur hækkað mest hjá notendum Orkubús Vestfjarða sem búsettir eru í dreifbýli, en heildar raforkukostnaður þeirra hefur hækkað um 34% frá því um mitt ár 2008. Hjá notendum á svæði Rarik, Rafveitu Reyðarfjarðar og í þéttbýli á Vestjörðum hefur raforkukostnaður einnig hækkað umtalsvert eða um 26-30%. Reikningur meðalheimilis á svæði HS orku og Norðurorku hefur á tímabilinu hækkað um fimmtung en minnst hækkun er hjá heimilum á svæði Orkuveitu Reykjavíkur eða um 6% Heildarkostnaður fyrir dreifingu, flutning og raforku til almennra heimilisnota hjá meðalheimili í þéttbýli, sem notar 4000 kWst. af rafmagni á ári, er hæstur hjá viðskiptavinum Rarik tæplega kr. 62.800 á ári. Lægstur er kostnaðurinn hjá Orkuveitu Reykavíkur kr. 48.250 á ári. Munurinn er kr. 14.550 á ári eða um 30%. Raforkukostnaður heimila í dreifbýli er mun hærri en í þéttbýli. Meðalheimilið í dreifbýli á svæði Orkubús Vestfjarða greiðir kr.78.600 á ári fyrir raforku til almennra heimilisnota en á dreifbýlissvæði Rarik er kostnaðurinn tæplega kr. 74.600 á ári og hefur þá verið tekið tillit til sérstaks drefibýlisframlags sem ríkið leggur fram til að niðurgreiða dreifingu á raforku í dreifbýli. Sjá nánar á vef ASÍ.
Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Fleiri fréttir Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Launmorðingjar ráðnir hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Sjá meira