Vændiskúnni segir vændinu hafa verið „otað að sér“ Erla Hlynsdóttir skrifar 15. nóvember 2010 15:00 Mennirnir tveir fóru saman í vændishús. Annar var fundinn sekur um vændiskaup en hinn sýknaður. Mynd: AFP
Tveir menn sem ákærðir voru fyrir vændiskaup fengu gjörólíka dóma þrátt fyrir að ljóst liggi fyrir að þeir fóru saman í vændishúsið. Annar maðurinn var sakfelldur en hinn var sýknaður þar sem konan sem sá síðarnefndi borgaði fyrir vændi var farin af landi brott og bar því ekki vitni. Samstarfskonur hennar vottuðu hins vegar að maðurinn hefði komið í vændishúsið og keypt vændi, þó ekki af þeim. Svo virðist sem mennirnir hafi verið að leita að hentugu húsnæði fyrir húsráðanda til að flytja vændisstarfsemina í. „Hann lýsti nuddinu, sem hann fékk, þannig að hann hefði verið nakinn og stúlka, sem var á nærbuxunum einum fata, hafi nuddað hann með öllum líkamanum þar til hann fékk sáðlát," segir í dómi yfir manninum sem nýverið var fundinn sekur um kaup á vændi. Dómurinn féll 5. nóvember og er manninum gert að greiða 120 þúsund krónur í sekt, eða sæta tíu daga fangelsisvist. Dómari í málinu, Arngrímur Ísberg, ákvað að nafn mannsins skyldi ekki birt. Málið tengist vændisstarfsemi Catalinu Ncogo og er maðurinn dæmdur fyrir að hafa keypt vændi í tvö skipti, í október og nóvember á síðasta ári. Reddaði honum „gellu" Við yfirheyrslu hjá lögreglu játaði maðurinn en dró framburð sinn til baka fyrir dómi. Framburður hjá lögreglu var þó tekinn upp á mynddisk og var lögmaður þar viðstaddur, auk þess sem vændiskona staðfesti að hafa þjónustað manninn. Upphaf málsins má rekja til þess að lögregla fékk heimild til símhlerunar til að rannsaka rökstuddan grun um vændisstarfsemi. Meðal málsgagna eru allmörg hljóðrituð símtöl mannsins við konur sem flest fjalla um kaup eða leigu á fasteignum. „Í einu símtalinu í lok nóvember 2009 spyr kona ákærða hvort hann sé graður og þegar hann játar því spyr hún hvað hann vilji gera í því," segir í dómi. „Daginn eftir ræðir ákærði aftur við konu um fasteignaviðskipti en síðan segist konan hafa verið búin að „redda honum gellu." Maðurinn sagðist þá vilja stúlku fyrir sig og aðra fyrir félaga sinn, þann sem var sýknaður, og tók fram að „þær verði að vera hvítar." 15 þúsund fyrir „everything" Síðar sama dag hljóðritaði lögregla símtöl aðstoðarkonu fyrrnefndu konunnar þar sem hún sagði að tveir „kúnnar" væru á leiðinni, að þeir séu „important people" og að þær verði að líta vel út. Verðið var sagt 15 þúsund krónur á manninn og innifalið í því sé „everything." Seki maðurinn keypti aftur vændi síðar, fyrir sama verð á sama stað. Við yfirheyrslu hjá lögreglu játaði hann að hafa fengið „erótískt nudd" en dró það til baka við aðalmeðferð málsins. Þá sagðist hann aðeins hafa rætt við húsráðanda um fasteignakaup. Þegar honum var greint frá hljóðupptökunum hafði hann skýringar á reiðum höndum. „Ákærði bar að í þessum samtölum hafi konurnar verið að ota að honum vændisþjónustu og freista hans til að kaupa hana. Viðbrögð hans hafi aðallega verið af forvitni til að vita hversu langt hann gæti gengið í þessu," segir í dómnum. Þá segist maðurinn ekki hafa þorað að ganga alla leið.Félagarnir komu alltaf saman Framburður vændiskonu stangaðist á við þetta þar sem hún staðfesti að hafa þjónustað manninn, auk þess sem önnur vændiskona hefði gert slíkt hið sama. Konan sagði einnig að í húsinu „hafi bara verið rekin vændisstarfsemi, það er boðið var upp á samfarir og munnmök" Mál félaga mannsins var tekið fyrir sama dag af sama dómara. Sá staðfesti að hafa komið í vændishúsið en sagði það hafa verið vegna fasteignaviðskipta. Stúlka sem kom fyrir dóminn bar kennsl á manninn. „Stúlkan kvaðst kannast vel við ákærða og kunningja hans og starfsfélaga og muna vel eftir þeim þar sem þeir hafi fengið sérstakan afslátt í boði konunnar sem rak húsið. Þeir hafa ávallt komið saman og keypt sér vændi. En einnig voru þeir að leita að húsnæði fyrir konuna sem rak húsið," segir í dómi. Málsvarnarlaun greidd úr ríkissjóði „Þrátt fyrir þetta ráðast úrslit málsins af því að gegn eindreginni neitun ákærða hefur ekkert vitni borið beint um að hann hafi keypt vændi eins og hann er ákærður fyrir. Þennan vafa verður að meta ákærða í hag," segir í dómi. Málsvarnarlaun þess sýknaða skulu greidd úr ríkissjóði. Lögmaður beggja mannanna var Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson.
Mál Catalinu Ncogo Vændi Mest lesið Töluverður eldsvoði og þrír fluttir af vettvangi í sjúkrabíl Innlent Mjög alvarlegt tilfelli Innlent Tekur sér leyfi frá Alþingi til að fara í áfengismeðferð Innlent Segja slúbberta hjá hinu opinbera kosta ríkið 30 til 50 milljarða árlega Innlent Útburður manns úr Bríetartúni dreginn til baka Innlent Skilti Vegagerðarinnar morandi í villum: „Er ekkert gæðaeftirlit hjá ykkur?“ Innlent Vildu að skikkjan yrði rifin af öxlum Ómars Innlent Fjórtán ára piltur grunaður um að leggja hníf að hálsi annars við Hvaleyrarvatn Innlent Kynntu fyrirhugaðan Sæbrautarstokk Innlent Skera niður til að mæta launahækkunum Innlent Fleiri fréttir Alvarlega slasaður en ekki í lífshættu eftir árás í Úlfarsárdal Blanda af „Mikka mús og íþróttaálfinum“ ógni lýðheilsu Sakar Guðrúnu um sjúklega þráhyggju Stokkur fjarlægi gjána sem skilji að Vogahverfin Hættir að taka krókinn um Háaleitisbraut og Miklubraut Vildu að skikkjan yrði rifin af öxlum Ómars Fjórtán ára piltur grunaður um að leggja hníf að hálsi annars við Hvaleyrarvatn „Þar sem vændi þrífst þar þrífst líka mansal“ Útburður manns úr Bríetartúni dreginn til baka Mjög alvarlegt tilfelli Viðbúnaður í Vesturbæ og nikótínumræður á Alþingi Guðrún segir ríkisstjórnina slá skjaldborg um Flokk fólksins Skera niður til að mæta launahækkunum Töluverður eldsvoði og þrír fluttir af vettvangi í sjúkrabíl Fjölga ferðum og auka tíðni ákveðinna leiða Strætó í haust Tekur sér leyfi frá Alþingi til að fara í áfengismeðferð Bein útsending: Afmælisráðstefna Afstöðu Kynntu fyrirhugaðan Sæbrautarstokk Börnin fari út en liggi undir trampólíninu í símanum Ráðist með hníf að ungmenni í Hafnarfirði Segja slúbberta hjá hinu opinbera kosta ríkið 30 til 50 milljarða árlega Skilti Vegagerðarinnar morandi í villum: „Er ekkert gæðaeftirlit hjá ykkur?“ EES-ríkin þrjú efla samstarf við ESB á sviði öryggismála Öskrandi og ber að ofan við grunnskóla Opni Ísraelar ekki fyrir mannúðaraðstoð „þá verða að vera þvinganir“ Neyðaraðstoð í gíslingu, óvænt ákvörðun og ærandi spenna Leigubílstjóri fór í svaðilför á Teslunni upp í Þórsmörk og sneri heill heim Grunaður árásarmaður í Úlfarsárdal handtekinn Slæmur frágangur akkerisins olli slysinu Níðingarnir treysta á skömmina í kynlífskúgunarmálum Sjá meira