Segir ríkisstjórnina óstarfhæfa 27. júlí 2010 07:00 Ragnheiður Elín Árnadóttir
Ætli stjórnvöld sér að grípa inn í kaup Magma Energy á HS orku getur það bakað ríkinu skaðabótaskyldu. Það setur einnig slæmt fordæmi sem komið getur í veg fyrir fjárfestingar erlendra aðila hér á landi, segir Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. „Mér finnst eins og menn séu búnir að missa sjónar á því sem verið er að ræða," segir Ragnheiður. „Við þurfum bæði innlent og erlent fjármagn, og stjórnvöld geta ekki leyft sér að breyta reglunum afturvirkt." Hún bendir á að í þessum málum sé farið eftir nýlegum lögum, sem sett hafi verið árið 2008. Ef deiluefnið sé hvort leigja eigi auðlindina til 65 ára megi ræða það, en svo virðist sem deilan snúist í raun um hvort nýta eigi þessa auðlind eða ekki. Þegar sé búið að tryggja opinbert eignarhald á auðlindinni. „Ég get tekið undir með Guðfríði Lilju [Grétarsdóttur, þingflokksformanni Vinstri grænna]. Ríkisstjórn sem ekki getur tekið á þessu máli er óstarfhæf," segir Ragnheiður. Spurð hvort boða eigi til kosninga segir hún að stjórnmálaflokkum sem sæti eigi á Alþingi beri skylda til að mynda starfhæfa ríkisstjórn. „Við erum ekki með starfhæfa ríkisstjórn, það hefur sýnt sig í hverju málinu á fætur öðru," segir Ragnheiður. - bj
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Sjá meira