Bjarki Már: Ég er ekki skrímsli 17. maí 2010 09:59 „Þessar ásakanir eru gjörsamlega út í hött og mér finnst dómurinn hafa farið frjálslega með sönnunarfærslu,“ segir Bjarki um átta ára fangelsisdóm sem Hæstiréttur staðfesti nýverið. Mynd/Pjetur „
Ég er ekki kynferðisbrotamaður og ég er ekki þetta skrímsli sem verið er að lýsa," segir Bjarki Már Magnússon í samtali við DV í dag. Hæstiréttur Íslands staðfesti í síðustu viku átta ára fangelsisdóm yfir honum. Bjarki neyddi þáverandi sambýliskonu sína, Hrafnhildi Stefánsdóttur, meðal annars til samræðis og annarra kynferðismaka með ellefu öðrum mönnum ásamt því sem hann tók myndir og myndbönd af ofbeldinu. Bjarka er gert að greiða henni þrjár milljónir króna. Í dómsorði segir að gjörðir hans eigi sér engar hliðstæður í íslenskri réttarsögu. „Þessi dómur eru svakalegir hnekkir fyrir mig. Stimpill sem kynferðisbrotamaður er svakalegur enda að ósekju," segir Bjarki. Hann íhugar að fara með málið fyrir mannréttindadómstól Evrópu. „Mér var mjög brugðið við þessa niðurstöðu og það er áfall hversu þungur dómurinn er. Þessar ásakanir eru gjörsamlega út í hött og mér finnst dómurinn hafa farið frjálslega með sönnunarfærslu."Segist vera í góðu sambandi við Hrafnhildi Dómur héraðsdóms Reykjavíkur féll í fyrrasumar en þar sem Bjarki áfrýjaði dómnum til Hæstaréttar hefur hann gengið laus og ekki verið í farbanni. Fyrir vikið var honum frjálst að ferðast til Noregs á dögunum þar sem hann setti sig strax í samband við Hrafnhildi, að því er fram kemur í DV. Eftir símtalið tilkynnti hún veru hans í landinu til lögreglu sem kom þegar á vakt við húsið hennar. Að sögn Hrafnhildar kom það þó ekki í veg fyrir ítrekaðar símhringingar að næturlagi sem ollu miklum ótta hjá henni. Um þetta segir Bjarki: „Hrafnhildur býr í íbúð sem við eigum og því fór ég út til Noregs. Það er ekki rétt að ég sé einhver voðalegur „stalker" og við höfum verið í alveg ágætu sambandi." Þá segist Bjarki aldrei hafa borið annað en góðan hug til Hrafnhildar. „Ég ítreka að fyrir mér er það sjokk að hún segist núna óttast mig með einhverjum hætti. Það er engin ástæða til, ég hef aldrei borið annað en góðan hug til Hrafnhildar. Það er alltaf eitthvað sem öðruvísi hefði mátt fara, hugsanlega hef ég lagt á hana of miklar byrðar varðandi fjármál og annað."Gengur laus Bjarki gengur enn laus. Páll Winkel fangelsismálastjóri staðfestir að Bjarki hafi verið boðaður til afplánunar og að hann hafi nú þriggja vikna frest til að gefa sig fram. Í samtali við DV segist Bjarki ekki óttast afdrif sín þegar í fangelsið verður komið. Tilhugsunin um að vera á leið í fangelsi sé þó mjög sérstök. „Ég óttast ekki um líf mitt og limi þegar inn verður komið enda er ég ekki þessi maður."
Tengdar fréttir Fórnarlamb ofbeldisfulla sambýlismannsins stígur fram Kona sem varð fyrir heimilisofbeldi af hálfu Bjarka Más Magnússonar, stígur fram í viðtali við DV í dag. Bjarki var fyrr í sumar dæmdur í átta ára fangelsi fyrir ítrekaðar árásir og fimmtán kynferðisbrot gegn konunni. 28. ágúst 2009 09:25 Barnsmóðir ofbeldismannsins vildi vitna um kynóra hans Barnsmóðir og fyrrum sambýliskona mannsins sem í gær var dæmdur í átta ára fangelsi fyrir gróft líkamlegt ofbeldi vildi vitna um kynóra mannsins en fékk ekki. Þau bjuggu saman á árunum 1991 til 1998 og eignuðust saman dóttur. 8. júlí 2009 13:58 Fær ekki að vitna í grófu ofbeldismáli Hæstiréttur meinaði fyrr í mánuðinum barnsmóður og fyrrum sambýliskonu meints ofbeldismanns að vitna í máli gegn honum. Maðurinn er talinn hafa beitt aðra konu sem hann bjó með grófu líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi á fjögurra ára tímabili. 18. maí 2009 14:30 Tveir af ellefu karlmönnum höfðu stöðu sakborninga Tveir af þeim 11 karlmönnum sem tóku þátt í kynlífsathöfnum með parinu sem kemur við sögu í kynferðisbrotamálinu sem dæmt var í í Héraðsdómi í gær höfðu stöðu sakborninga á rannsóknarstigi málsins hjá lögreglu, samkvæmt upplýsingum frá Huldu Elsu Björgvinsdóttur settum saksóknara. 8. júlí 2009 16:23 Ofbeldisfulli sambýlismaðurinn áfrýjar til Hæstaréttar Karlmaðurinn sem var í dag dæmdur í átta ára fangelsi fyrir fjölmargar líkamsárásir og 15 alvarleg kynferðisbrot gagnvart fyrrverandi sambýliskonu sinni mun að öllum líkindum áfrýja dóminum til Hæstaréttar, að sögn Hilmars Ingimundarsonar lögmanns mannsins. Hann reiknar með að aðalkrafan verði að upphaflegu ákærunni verði vísað frá vegna vanhæfis ríkissaksóknara og sett saksóknara sem gaf út ákæruna í málinu. 7. júlí 2009 17:30 Elti Hrafnhildi til Noregs þrátt fyrir þungan fangelsisdóm Eftir að Bjarki Már Magnússon, sem beitti sambýliskonu sína hrottalegu ofbeldi um nokkurra ára skeið, áfrýjaði þungum fangelsisdómi til Hæstaréttar elti hana konuna til Noregs og áreitti hana. Allan tímann sem Bjarki dvaldi í landinu vaktaði norska lögreglan heimili konunnar sem heitir Hrafnhildur Stefánsdóttir. Rætt er við hana í DV í dag. 14. maí 2010 10:01 Ríkissaksóknari var ekki vanhæfur í máli ofbeldisfulla sambýlismannsins Ríkissaksóknari var ekki vanhæfur til að gefa út ákæru á hendur manninum sem í vikunni fékk þungan dóm fyrir að beita sambýliskonu sína grófu ofbeldi, að mati héraðsdóms. Dómnum verður að öllum líkindum áfrýjað til Hæstaréttar vegna of náinna tengsla á milli þeirra sem rannsökuðu málið og ákæruvaldsins. 11. júlí 2009 12:07 Neyddi sambýliskonu sína til kynmaka með öðrum mönnum Karlmaður var í dag dæmdur í 8 ára fangelsi fyrir fjölmargar líkamsárásir og 15 alvarleg kynferðisbrot gagnvart fyrrverandi sambýliskonu sinni. Meðal annars neyddi maðurinn konuna til samræðis og annarra kynferðismaka við 11 aðra karlmenn. Maðurinn var jafnframt dæmdur fyrir að hafa ráðist á föður sinn og hótað honum lífláti. Manninum er gert að greiða konunni 3,8 milljónir króna í miskabætur. 7. júlí 2009 13:56 Hæstiréttur hefur ítrekað fjallað um mál ofbeldisfulla sambýlismannsins Mál tengd manninum sem var dæmdur í átta ára fangelsi á þriðjudaginn hefur fjórum sinnum komið inn á borð Hæstaréttar eftir að sambýliskona mannsins kærði hann fyrir gróft ofbeldi í janúar 2008. Þrívegis klofnaði Hæstiréttur þegar rétturinn úrskurðaði tvisvar um nálgunarbann og hvort að barnsmóðir mannsins fengi að vitna í málinu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. 9. júlí 2009 13:45 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin: Sjöundi forseti lýðveldisins verður kjörinn Innlent Tívolíbomba hefði getað skapað stórhættu Innlent Ólík sýn á hvort Ísland eigi að styðja vörn Úkraínumanna Innlent „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Innlent „Unga fólkið er klárlega að velja okkar framboð“ Innlent „Ég held að þetta verði mjög spennandi“ Innlent Jón Gnarr mjög bjartsýnn: „Fyrsti krúnurakaði rauðhærði forsetinn“ Innlent Fékk „gríðarlega góð“ viðbrögð eftir kappræðurnar Innlent Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu Innlent Friðartillaga Ísraela sem Biden kynnti virðist fá hljómgrunn Erlent Fleiri fréttir Bláa lónið opnar aftur á morgun Sjómannadagsfjör á Skagaströnd Margir góðir frambjóðendur í boði Jón Gnarr mjög bjartsýnn: „Fyrsti krúnurakaði rauðhærði forsetinn“ „Held ég fari bara að sofa upp úr miðnætti“ Rolluhótel sárabót fyrir að missa gistiheimilið „Væta í minni sveit boðaði heldur betur grósku“ „Unga fólkið er klárlega að velja okkar framboð“ Kjörsókn víða ívið betri en í síðustu kosningum Fékk „gríðarlega góð“ viðbrögð eftir kappræðurnar Fólk kasti atkvæði sínu á stríðsbálið „Ég held að þetta verði mjög spennandi“ Forsetavaktin: Sjöundi forseti lýðveldisins verður kjörinn Tívolíbomba hefði getað skapað stórhættu Ólík sýn á hvort Ísland eigi að styðja vörn Úkraínumanna „Við útrýmum ekki ofbeldi með hatri“ Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Mótmælin í dag þau hörðustu í mörg ár Sækja veikan jeppamann á Langjökli VÍS þarf að bæta hluta jarðýtu í mannskæðu vinnuslysi Lokasprettur fyrir kosningar og umræða um kynbundið ofbeldi Ný könnun sýnir stefna í æsispennandi kjördag Hvar áttu að kjósa í forsetakosningum? Fyrirskipar forsætisráðuneytinu að fara yfir ferla „Heiðurstengt ofbeldi er ekki okkar stærsta vandamál“ Eldgosið í beinni útsendingu Taka aftur við eignum í Grindavík eftir helgi Páll sýknaður Tuttugu sendlar Wolt eiga yfir höfði sér kæru Sjá meira
Fórnarlamb ofbeldisfulla sambýlismannsins stígur fram Kona sem varð fyrir heimilisofbeldi af hálfu Bjarka Más Magnússonar, stígur fram í viðtali við DV í dag. Bjarki var fyrr í sumar dæmdur í átta ára fangelsi fyrir ítrekaðar árásir og fimmtán kynferðisbrot gegn konunni. 28. ágúst 2009 09:25
Barnsmóðir ofbeldismannsins vildi vitna um kynóra hans Barnsmóðir og fyrrum sambýliskona mannsins sem í gær var dæmdur í átta ára fangelsi fyrir gróft líkamlegt ofbeldi vildi vitna um kynóra mannsins en fékk ekki. Þau bjuggu saman á árunum 1991 til 1998 og eignuðust saman dóttur. 8. júlí 2009 13:58
Fær ekki að vitna í grófu ofbeldismáli Hæstiréttur meinaði fyrr í mánuðinum barnsmóður og fyrrum sambýliskonu meints ofbeldismanns að vitna í máli gegn honum. Maðurinn er talinn hafa beitt aðra konu sem hann bjó með grófu líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi á fjögurra ára tímabili. 18. maí 2009 14:30
Tveir af ellefu karlmönnum höfðu stöðu sakborninga Tveir af þeim 11 karlmönnum sem tóku þátt í kynlífsathöfnum með parinu sem kemur við sögu í kynferðisbrotamálinu sem dæmt var í í Héraðsdómi í gær höfðu stöðu sakborninga á rannsóknarstigi málsins hjá lögreglu, samkvæmt upplýsingum frá Huldu Elsu Björgvinsdóttur settum saksóknara. 8. júlí 2009 16:23
Ofbeldisfulli sambýlismaðurinn áfrýjar til Hæstaréttar Karlmaðurinn sem var í dag dæmdur í átta ára fangelsi fyrir fjölmargar líkamsárásir og 15 alvarleg kynferðisbrot gagnvart fyrrverandi sambýliskonu sinni mun að öllum líkindum áfrýja dóminum til Hæstaréttar, að sögn Hilmars Ingimundarsonar lögmanns mannsins. Hann reiknar með að aðalkrafan verði að upphaflegu ákærunni verði vísað frá vegna vanhæfis ríkissaksóknara og sett saksóknara sem gaf út ákæruna í málinu. 7. júlí 2009 17:30
Elti Hrafnhildi til Noregs þrátt fyrir þungan fangelsisdóm Eftir að Bjarki Már Magnússon, sem beitti sambýliskonu sína hrottalegu ofbeldi um nokkurra ára skeið, áfrýjaði þungum fangelsisdómi til Hæstaréttar elti hana konuna til Noregs og áreitti hana. Allan tímann sem Bjarki dvaldi í landinu vaktaði norska lögreglan heimili konunnar sem heitir Hrafnhildur Stefánsdóttir. Rætt er við hana í DV í dag. 14. maí 2010 10:01
Ríkissaksóknari var ekki vanhæfur í máli ofbeldisfulla sambýlismannsins Ríkissaksóknari var ekki vanhæfur til að gefa út ákæru á hendur manninum sem í vikunni fékk þungan dóm fyrir að beita sambýliskonu sína grófu ofbeldi, að mati héraðsdóms. Dómnum verður að öllum líkindum áfrýjað til Hæstaréttar vegna of náinna tengsla á milli þeirra sem rannsökuðu málið og ákæruvaldsins. 11. júlí 2009 12:07
Neyddi sambýliskonu sína til kynmaka með öðrum mönnum Karlmaður var í dag dæmdur í 8 ára fangelsi fyrir fjölmargar líkamsárásir og 15 alvarleg kynferðisbrot gagnvart fyrrverandi sambýliskonu sinni. Meðal annars neyddi maðurinn konuna til samræðis og annarra kynferðismaka við 11 aðra karlmenn. Maðurinn var jafnframt dæmdur fyrir að hafa ráðist á föður sinn og hótað honum lífláti. Manninum er gert að greiða konunni 3,8 milljónir króna í miskabætur. 7. júlí 2009 13:56
Hæstiréttur hefur ítrekað fjallað um mál ofbeldisfulla sambýlismannsins Mál tengd manninum sem var dæmdur í átta ára fangelsi á þriðjudaginn hefur fjórum sinnum komið inn á borð Hæstaréttar eftir að sambýliskona mannsins kærði hann fyrir gróft ofbeldi í janúar 2008. Þrívegis klofnaði Hæstiréttur þegar rétturinn úrskurðaði tvisvar um nálgunarbann og hvort að barnsmóðir mannsins fengi að vitna í málinu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. 9. júlí 2009 13:45