Viðskipti innlent

Kaupþing bjargaði Baugi

Tvö félög tengd Bónusfjölskyldunni, Baugur Group og Gaumur, voru komin í fjárhagsvanda snemma árs 2008 og lá fyrir að Baugur gæti ekki staðið við skuldbindingar sínar um vorið án aðstoðar. Kaupþing lánaði því öðru félagi fjölskyldunnar, 1998, ehf, 30,6 milljarða króna til að kaupa Haga úr úr Baugi ásamt því að kaupa tvö félög af Baugi og tengdum aðilum.

Fram kom í kynningu hjá Kaupþingi að Baugur hafði tapað umtalsverðum fjárhæðum og að eigið fé Gaums væri neikvætt. Lagðar voru fram tvær hugmyndir til að styðja við bak félögunum.

Önnur hugmyndin kallaðist BG lausnir sem miðaði að því að skylda Baug til að selja hluti sína í bresku félögunum Jane Norman og Booker, en þar sem markaðsaðstæður væru slæmar yrði Kaupþing að vera kaupandinn. Glitnir var með útistandandi lán fyrir Booker-hlutabréfunum og miðaði lausnin að því að leysa það mál.

Hin leiðin var nefnd Gaumur lausnir. Hún fólst í að selja Haga til Gaums á móti greiðslu í hlutabréfum í Baugi. Það yrði útgönguleið fyrir Jóhannes Jónsson. Hagar yrðu greiddir út til hluthafa í Baugi Group, sem myndi gefa Kaupþingi 89 prósenta veð í Högum.

Fram kemur í skýrslu Rannsóknarnefndar að Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings, hafi hitt Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóra Baugs á þeim tíma. Í maílok keypti síðan Kaupþing Jane Norman og Milton af Baugi Group og tengdum aðilum fyrir 13,5 milljarða króna. Féð fór aftur í bankann sem uppgjör á skuldum félaganna við bankann.

Þessu til viðbótar lánaði bankinn 1998 ehf. 30,6 milljarða króna, sem nýttist til kaupa á Högum úr Baugi Group.









Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×