Innlent

Svanhildur áfram formaður

Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra og ráðherra ferðamála, hefur skipað í ferðamálaráð til fjögurra ára. Formaður ferðamálaráðs er áfram Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar.

Varaformaður ráðsins er Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarstjóri í Árborg, en aðrir fulltrúar eru Ásbjörn Jónsson og Unnur Halldórsdóttir frá Ferðamálasamtökum Íslands, Anna G. Sverrisdóttir, Helgi Már Björgv­insson og Sævar Skaptason frá Samtökum ferðaþjónustunnar. Aldís Hafsteinsdóttir og Dofri Hermannsson eru fulltrúar Sambands íslenskra sveitarfélaga og Jón Ásbergsson frá Útflutningsráði. - óká






Fleiri fréttir

Sjá meira


×