Björn Bjarnason fundaði með Baugsmönnum: Gunnar Smári bitbeinið Valur Grettisson skrifar 13. nóvember 2010 19:38 Björn Bjarnason sagði ekki mikillar góðvildar að vænta svo lengi sem Gunnar Smári sæti í hásæti fjölmiðlanna.
Jónína Benediktsdóttir fullyrðir í nýútkominni ævisögu sinni að Jón Ásgeir Jóhannesson hafi fundað með Hannesi Hólmsteini. Þá hitti Björn Bjarnason aðstoðarmann Jóns Ásgeirs árið 2005, á hápunkti Baugsmálsins. Hún segir að einn af nánustu ráðgjöfum Baugs, sem hún vill ekki nafngreina, hafi reynt ítrekað að koma á fundi með Jóni Ásgeiri og Davíð Oddssyni. Svo virðist sem Jón Ásgeir hafi viljað grafa stríðsöxina en í pósti sem ráðgjafinn sendi á Jónínu segir: „Það gengur ekki að framámenn í íslensku atvinnulífi og forystumenn í Sjálfstæðisflokknum séu að vega hver að öðrum." Jónína er hispurslaus í frásögn sinni. Myndin er tekin eftir vitnaleiðslur í Baugsmálinu. Samskiptin fóru í gegnum þáverandi aðstoðarmann Davíðs, Illuga Gunnarsson. Svarið var alltaf á sömu leið; Davíð hafði engan áhuga á að hitta Jón. Í pósti nafnlausa sáttasemjarans kemur fram að Hannes Hólmsteinn hafi hinsvegar fundað með Jóni Ásgeiri. Og það sem meira er þá virðist sá fundur virðist hafa verið uppbyggilegur samkvæmt Jónínu. Svo virðist þó ekki hafa verið þegar Björn Bjarnason, þáverandi dómsmálaráðherra, hitti Baugsmenn samkvæmt pósti sem hann sendi Jónínu. Þar segir hann: „Mér finnst margt gott um.... og hann er á ýmsan hátt sniðugur, en maður, sem leiðir Gunnar Smára í hásæti í fjölmiðlum og heldur, að skynsemi og góðvild fái að ráða, er ekki mjög glöggur á alla hluti." Þess má geta að Gunnar Smári var á þessum tíma starfandi hjá 365 miðlum. Það virðist hafa verið sem eitur í beinum Björns. Leiðrétting. Í fyrstu sagði frá því að Björn hefði fundað með Jóni Ásgeiri. Það er ekki rétt, hann fundaði með astoðarmanni hans og öðrum Baugsmönnum. Í kjölfarið ritaði hann póstinn til Jónínu. Það var höfundur bókarinnar, Sölvi Tryggvason, sem fjarlægði nafn aðstoðarmannsins úr tölvupósti Björns sem er birtur í bók Jónínu. Beðist er velvirðingar á þessu.
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Sjá meira