Innlent

Gerðu ítarlega leit í skipi við Seyðisfjarðarhöfn

Seyðisfjörður. Tollverðir og fíkniefnalögreglumenn gerðu ítarlega leit í skipinu í gær og kafað var undir það, en ekkert fannst við þá leit eftir því sem næst verður komist.
Seyðisfjörður. Tollverðir og fíkniefnalögreglumenn gerðu ítarlega leit í skipinu í gær og kafað var undir það, en ekkert fannst við þá leit eftir því sem næst verður komist.

Ekki liggur fyrir hvort þrír Hollendingar, sem voru handteknir um borð í gömlu fiskiskipi í Seyðisfjarðarhöfn, hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna gruns um fíkniefnamisferli, en fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur tekið við rannsókn málsins.

Skipið kom til Seyðisfjarðar á laugardag og sögðust skipverjar vera á leið til Grænlands. Tollverðir og fíkniefnalögreglumenn gerðu ítarlega leit í skipinu í gær og kafað var undir það, en ekkert fannst við þá leit eftir því sem næst verður komist.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×