Karen Elson, eiginkona rokkarans Jacks White, hefur aflýst fyrirhugaðri tónleikaferð sinni um Evrópu.
Elson, sem starfaði sem fyrirsæta áður en hún skellti sér út í tónlistina, gekk að eiga rokkarann White árið 2005. Þau hafa unnið saman að tónlist hennar og White er upptökustjóri plötunnar The Ghost That Walks.
Ráðgert hafði verið að Elson léki á fyrstu tónleikunum í Berlín í næstu viku og síðan áttu nokkrir tónleikar að fylgja í kjölfarið. Talsmaður söngkonunnar segir að öllum tónleikum Elson hafi verið aflýst. Ekki fæst uppgefið hver ástæðan er.