Um 140 milljónir manna nota Firefox daglega Jón Hákon Halldórsson skrifar 20. nóvember 2010 22:46 mynd/ afp
Hugbúnaðarfyrirtækið Mozilla, sem meðal annars framleiðir Firefox vafrann, velti 104 milljónum bandaríkjadala á síðasta reikningsári, samkvæmt nýjum ársreikningi félagsins. Upphæðin nemur tæpum 12 milljörðum íslenskra króna en tekjuaukningin nemur um 34% frá fyrra ári. Í ársreikningnum, sem vísað er til að vefnum business.dk, kemur fram að stærstur hluti teknanna kemur frá fyrirtækjum sem halda úti leitarvélum. Einkum er þar um að ræða Google, sem á hlut í Firefox, en líka frá Yahoo og Yandex. Þá er hluti teknanna frá Amazon og eBay. Þá námu útgjöld Mozilla 61 milljónum dala, eða tæpum 7 milljörðum króna, og er það aukning um 26%. Stærsti útgjaldaliðurinn var laun, en um 250 manns starfa hjá Mozilla og tengdum fyrirtækjum. Samkvæmt árskýrslunni nota 400 milljónir manna Firefox og lætur nærri að af þeim noti 140 milljónir manna vafrann daglega.
Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira