Ramos var settur í einangrun 7. janúar 2010 05:00 Þannig lítur það út, eggvopnið sem Ramos hótaði fangaverði lífláti með.
Brasilíski lýtalæknirinn Hosmany Ramos, sem hótaði fangaverði með eggvopni þegar hann reyndi að flýja frá fangavörðum í fyrradag, var beittur agaviðurlögum vegna málsins og settur í einangrun á Litla-Hrauni. Hann þarf að sæta einangrun í tíu daga og verður síðan að öllum líkindum vistaður á öryggisgangi á Litla-Hrauni, samkvæmt upplýsingum frá Fangelsismálastofnun. Verið var að flytja Ramos fyrir dómara þegar hann reyndi flóttann, eins og Fréttablaðið greindi frá í gær. Hann náði að losa af sér handjárnin og stökk út úr fangaflutningabílnum. Lögreglubíll á næstu grösum náði að sveigja í veg fyrir hann og lögreglumanninum í bílnum og tveimur fangaflutningamönnum tókst svo að handsama hann. Þá hafði hann hótað öðrum fangaverðinum lífláti með því að ota að honum heimatilbúnu eggvopni, sem hann hafði leynt á sér. Ramos var í héraðsdómi úrskurðaður í gæsluvarðhald til 19. janúar. Hann hefur kært úrskurð dómsmálaráðuneytis þess efnis að hann verði framseldur til brasilískra yfirvalda vegna glæpaverka í heimalandinu, til héraðsdóms.- jss
Tengdar fréttir Hótaði fangaverði lífláti í stroktilraun Brasilíski gæsluvarðhaldsfanginn Hosmany Ramos hótaði fangaverði lífláti um hádegisbilið í gær þegar verið var að færa hann fyrir dómara, til framlengingar á gæsluvarðhaldi hans, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Áður hafði honum tekist að útbúa á laun oddhvasst stunguvopn, sem hann hótaði fangaflutningamanninum með. 6. janúar 2010 06:00 Flýði til þess að mótmæla ítrekuðu gæsluvarðhaldi Brasilíski lýtalæknirinn Hosmany Ramos þarf að sæta agaviðurlögum vegna flóttatilraunar auk þess sem hann hótaði fangaverði með heimatilbúnu eggvopni. Að sögn lögmanns Ramosar þá sætir hann einangrun í tíu daga. 6. janúar 2010 10:56 Mest lesið Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Innlent Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Innlent Segir Bill og aðra þurfa að svara fyrir tengsl sín við Epstein Erlent „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Innlent Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Innlent Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári Innlent Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Innlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent Lögregla hefur rannsókn á samskiptum Mandelson og Epstein Erlent Fleiri fréttir Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Vara við svikasímtölum í nafni Sigríðar Bjarkar Breytingar hjá Viðreisn eftir afsögn Guðbrands Símafrí í grunnskólum Kópavogs Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Þjóðin klofin gagnvart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Tveggja turna tal í Reykjavík Tillaga um „hlaðborð lausna“ felld Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Sérsveitin brást við slagsmálum á Selfossi: „Í það minnsta kylfa notuð“ Telja eðlilegt að gusurnar greiði gjald Rannsókn hófst eftir tilkynningu starfsmanns Rannsókn á andlátinu hófst eftir tilkynningu starfsmanns „Af öllum vondu málum ríkisstjórnarinnar finnst mér þetta það versta“ Starfsmenn á bráðamóttöku með berkla en ekki taldir smitandi Snjóleysi í Reykjavík í janúar ekki einsdæmi en afar fátítt Kröfunni hafnað og starfsmönnunum sleppt Sjá meira
Hótaði fangaverði lífláti í stroktilraun Brasilíski gæsluvarðhaldsfanginn Hosmany Ramos hótaði fangaverði lífláti um hádegisbilið í gær þegar verið var að færa hann fyrir dómara, til framlengingar á gæsluvarðhaldi hans, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Áður hafði honum tekist að útbúa á laun oddhvasst stunguvopn, sem hann hótaði fangaflutningamanninum með. 6. janúar 2010 06:00
Flýði til þess að mótmæla ítrekuðu gæsluvarðhaldi Brasilíski lýtalæknirinn Hosmany Ramos þarf að sæta agaviðurlögum vegna flóttatilraunar auk þess sem hann hótaði fangaverði með heimatilbúnu eggvopni. Að sögn lögmanns Ramosar þá sætir hann einangrun í tíu daga. 6. janúar 2010 10:56