Körfubolti

Cleveland á eftir Stoudemire

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Cleveland Cavaliers er á meðal þeirra félaga sem reyna að fá stjörnuleikmanninn Amare Stoudemire í sínar raðir þessa dagana.

Phoenix Suns er sagt vera tilbúið að láta hann fara fyrir ungan leikmann sem og valrétt í fyrstu umferð í næsta nýliðavali.

Ef Cleveland ætlar að næla í Stoudemire þarf liðið klárlega að senda framherjann unga, J.J. Hickson, yfir til Phoenix.

Félagaskiptagluginn lokar 18. febrúar í NBA-deildinni.

Stoudemire er með 21.2 stig að meðaltali í vetur. Hann hefur einnig rifið niður rúmlega 8 fráköst í hverjum leik.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×