Strætó klessti á almannatengil - Myndir 7. apríl 2009 20:25 Ómar R. Valdimarsson, almannatengill, brosti í kampinn þrátt fyrir áreksturinn. „
Hann keyrði eins og brjálæðingur alla leið frá Lækjargötu," sagði farþegi í leið númer 3 sem keyrði aftaná bíl almannatengilsins Ómars R. Valdimarssonar á áttunda tímanum í kvöld. Atburðurinn átti sér stað á Miklubraut gegnt ritstjórnarskrifstofu fréttastofunnar. Strætóbílsstjórinn brást hinn versti við vitnisburði stúlknanna og reyndi að reka þær út úr bílnum áður en lögreglan kom á svæðið. Blaðamaður ræðir við Ómar R. Valdimarsson. Strætóbílstjórinn horfir mæðulega í myndavélina. „Drullið ykkur út," sagði strætóbílsstjórinn við stúlkurnar sem útskýrðu atburðarrásina fyrir blaðamanni. Þrátt fyrir ókvæðisorð vagnsstjórans héldu stúlkurnar áfram með frásögn sína; þær sögðu bílsstjórann hafa keyrt glannalega og farþegar henst til og frá í vagninum. Saga stúlknanna kom heim og saman við frásögn Ómars R. Valdimarssonar sem horfði á bíl sinn skemmdan eftir aftanákeyrslu vagnsstjórans á leið 3. Ómar útskýrði fyrir blaðamanni að hann hefði beygt inn á Miklubrautina, vagninn hefði verið í hæfilegri fjarlægð en skyndilega hafi gulur vagninn fyllt baksýnisspegilinn. „Svo gaf hann bara í," sagði Ómar og bíll hans bar aðgerðum vagnsstjórans vitni. Lögreglan tók skýrslur af farþegum sem húktu niðurlútir í vagninum á Miklubrautinni. Aðspurður sagðist Ómar ekki kenna sér mikils meins eftir áreksturinn þrátt fyrir augljósan mun á stærð bifreiðanna. Golf gegn Strætó; ójafn leikur. Lögreglan tók skýrslur af farþegum sem húktu niðurlútir í vagninum á Miklubrautinni. Aðspurður sagðist Ómar ekki kenna sér mikils meins eftir áreksturinn þrátt fyrir augljósan mun á stærð bifreiðanna.
Mest lesið Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Innlent Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Innlent Níu drepnir í drónaárás á rútu Erlent Svalt þokuloft ekki langt undan Innlent Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu Innlent Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Innlent Árásirnar sagðar þær umfangsmestu síðan viðræðurnar fóru fyrir bí Erlent Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Innlent Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Innlent Styður tillögur að róttækum breytingum á byggingareftirliti Innlent Fleiri fréttir Styður tillögur að róttækum breytingum á byggingareftirliti Róttækar breytingar á byggingareftirliti og í beinni frá Basel Blöndulón fyllist sögulega snemma og staðan góð í lónum Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Svalt þokuloft ekki langt undan Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu Björgunarmiðstöð byggð á Flúðum Eftirspurn á hlutabréfamarkaði mikil og blómstrandi gróður Sýknaðir af ákæru fyrir að brjótast inn í eigið hús Hvetja stjórnvöld í Ísrael til að breyta stefnu sinni tafarlaust Hefur áhyggjur af öryggi skólabarna í Laugardal Úlfar heldur fullum launum í heilt ár Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Umferðarljós við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar óvirk Óheillaskref að áfengi sé selt á vellinum Mikið viðbragð Gæslunnar vegna veikinda langt úti á hafi Tugmilljóna gjaldþrot meðhöndlarans Bein útsending: Sterkari saman - Þjóðarsjúkrahús í 25 ár Afstaða fær 600 þúsund í verðlaun frá Reykjavíkurborg Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Sakar RÚV um óvandaðan fréttaflutning um fjármál borgarinnar Rafmagnslaust á Granda Nítján í haldi vegna fíkniefnainnflutnings um Keflavíkurflugvöll Mál Margeirs til Landsréttar Fjármálaráðherra ánægður með söluna á Íslandsbanka Hvetja kattaeigendur til að setja kettina í útivistarbann „Nú er verkstjórn tekin við sem gengur í málið“ Þrír grunaðir í tengslum við brunann á Stuðlum Sjá meira