Öruggt hjá United Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 18. febrúar 2009 21:50 Leikmenn United fagna marki Wayne Rooney í kvöld. Nordic Photos / Getty Images
Manchester United er komið með fimm stiga forystu á Liverpool á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir 3-0 sigur á Fulham í frestuðum leik úr þriðju umferð deildarinnar. Þar með hafa níu efstu liðin öll leikið 25 leiki. United er með átta stiga forystu á Aston Villa sem er í þriðja sæti, tíu stiga forystu á Chelsea og fimmtán stiga forystu á Arsenal. Þeir Paul Scholes, Dimitar Berbatov og Wayne Rooney skoruðu mörk United í kvöld en Edwin van der Sar hefur nú haldið marki sínu hreinu í 1302 mínútur. Hann bætir því enn met sitt í Englandi. Wayne Rooney var á meðal varamanna í leiknum en þeir Nemanja Vidic, Paul Scholes og Carlos Tevez komu allir inn í byrjunarliðið eftir að hafa verið á bekknum gegn Derby í bikarnum. Þeir Andy Johnson og Paul Konchesky voru báðir meiddir í liði Fulham og komu þeir Toni Kallio og Bobby Zamora. Fyrsta markið kom strax á tólftu mínútu. Michael Carrick tók hornspyrnu beint á Paul Scholes sem skaut að marki af 25 metra færi. Mark Schwarzer hefði ef til vill átt að verja skotið en hann náði ekki að halda boltanum sem skoppaði yfir línuna í kjölfarið. United var að leika glimrandi knattspyrnu í fyrri hálfleik og sást það einna best þegar að næsta mark leiksins kom. Leikmenn United héldu boltanum lengi og lauk sókninni með því að Scholes lyftir boltanum vörn Fulham á John O'Shea sem framlengdi um leið boltann á Berbatov. Hann átti í engum vandræðum með að skora. United átti fleiri færi í fyrri hálfleik en mörkin urðu ekki fleiri. Wayne Rooney kom svo inn á sem varamaður fyrir Berbatov á 61. mínútu og var búinn að skora þriðja og síðasta mark United tveimur mínútum síðar. Fulham náði ekki að hreinsa boltann frá marki og barst hann á Ji-Sung Park. Hann gaf boltann fyrir markið þar sem Rooney var mættur á fjærstöng og potaði boltanum í markið. Þar með voru úrslit leiksins ráðin og bara spurning um hvort að leikmenn Fulham næðu að skora framhjá Edwin van der Sar. Það tókst ekki og hefur Hollendingurinn stóri því haldið marki United hreinu í 1302 mínútur. Þar með er hann kominn í annað sæti á lista markvarða í evrópskum liðum. Danny Verlinden hélt marki Club Brugge hreinu í 1390 mínútur árið 1990. Van der Sar getur þar með bætt það met í næsta leik United. Hann á þó talsvert í Mazaropi, markvörð Vasco de Gama, sem hélt marki sínu hreinu í 1816 mínútur tímabilið 1977-78. Hann er þó nú kominn í sjötta sæti heimslistans.
Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti Man. City verður meistari Sport „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Körfubolti Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Handbolti „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ Körfubolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Umdeild auglýsing heldur áfram að draga dilk á eftir sér Golf Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Enski boltinn Fleiri fréttir Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Sjá meira