Viðskipti innlent

Iceland Express í samstarf við Listahátíð

Samstarfssamningur þess efnis að Iceland Express verði einn af aðalsamstarfsaðilum Listahátíðar í Reykjavík var undirritaður í morgun.

Er þetta í fyrsta sinn sem Listahátíð og Iceland Express starfa saman. Listahátíð væntir góðs af samstarfinu enda góðar og hagkvæmar samgöngur til og frá landinu ein af undirstöðum alþjóðlegrar Listahátíðar á Íslandi.

Samstarfssamingur Listahátíðar og Iceland Express er til næstu tveggja ára og var undirritaður í höfuðstöðvum Iceland Express í Grímsbæ. Það voru þau Hrefna Haraldsdóttir listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík og Matthías Imsland forstjóri Iceland Express sem undirrituðu samninginn.

Við undirritun sagði Hrefna Haraldsdóttir að samstarfið við Iceland Express hefði mikið gildi. "Samstarfið er forsenda þess að Listahátíð geti flutt inn erlenda listamenn og þess vegna er samningurinn sem undirritaður er hér í dag mjög mikilvægur fyrir starfsemi okkar. Þá er gaman að starfa með kraftmiklu og hugmyndaríku fólki að sameiginlegum markmiðum Listahátíðar og Iceland Express, sem er að flytja til landsins listamenn og erlenda gesti sem vilja njóta viðburða Listahátíðar í Reykjavík."

Matthías Imsland sagði af sama tilefni: „Ég vil þakka það mikla traust sem stjórnendur Listahátíðar í Reykjavík sýna Iceland Express. Okkur er mikill sómi sýndur að vera beðin um að taka við því hlutverki, að flytja heimsfræga gesti Listahátíðar til landsins."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×