Lífið

Mamma Chris Brown: „Rihanna er mér sem dóttir“

Rihanna og Chris Brown
Rihanna og Chris Brown
Joyce Hawkins móðir Chris Brown segir að fyrrum kærasta hans, söngkonan Rihanna, sé sér sem dóttir. Hún hefur ekki séð söngkonuna síðan sonur hennar réðst á hana í febrúar á þessu ár, og hún segist sakna hennar.

„Ég elska Rihnnu. Hún er mér sem dóttir. Hún varð hluti af fjölskyldunni. Hún eyddi með okkur jólunum síðustu tvö ár. Ég sakna hennar mikið."

Brown réðst á Rihönnu í bíl þeirra rétt áður en þau fóru í teiti fyrir Grammyverðlaunaafhendinguna. Hann sló hann ítrekað í andlitið og beit hana í handlegginn. Síðar viðurkenndi hann árásina og var dæmdur til sex mánaða samfélagsþjónustu fyrir vikið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×