Óvissa um Helguvík bregðist lán til OR 9. október 2009 06:00 Frá Helguvík
Áætlanir Orkuveitu Reykjavíkur (OR) um virkjanaframkvæmdir eru í uppnámi, fáist ekki þrjátíu milljarða króna lán frá Evrópska fjárfestingarbankanum (EIB) sem vilyrði er fyrir. Afgreiðslu lánsins var hafnað í júlí vegna óstöðugleika í efnahagslífinu. Hjörleifur Kvaran, forstjóri OR, segir aðeins dagaspursmál hvenær EIB svari því hvort fyrirtækinu verði veitt lánið sem vilyrði var gefið fyrir á sínum tíma. Tvennt sé í spilunum. Fáist lánið verði gengið í að klára Hellisheiðarvirkjun en öfugt við áætlanir verði ekki ráðist í Hverahlíðarvirkjun fyrr en fjármögnun þess verkefnisins sé að fullu lokið. Fáist lánið hins vegar ekki muni það valda því að fjármögnun annars staðar frá verði erfið, sem skapi óvissu um framhaldið. „Við eigum því mikið undir því að fá þessa fyrirgreiðslu," segir Hjörleifur. Á meðan beðið er svars frá EIB fundar sendinefnd í Japan um afhendingu á vélasamstæðum sem setja á niður í fyrrnefndum virkjunum, en fjármögnun þeirra tengist láninu frá EIB. Hugsanlega verður hætt við móttöku þeirra, sem þýðir fjárútlát og miklar tafir fyrir OR. „Orkuveitan skiptir miklu máli í Helguvíkurverkefninu en fjármögnunarmálin eru í óvissu. Þetta er keðja stórra verkefna sem byggja hvert á öðru," segir Kristján Skarphéðinsson, ráðuneytisstjóri iðnaðarráðuneytisins. Á fundi Samtaka atvinnulífsins um framkvæmdir í ljósi stöðugleikasáttmálans gerði Kristján grein fyrir stöðu stórra verkefna sem líkleg eru til að hafa áhrif á hagvöxt og atvinnu á næsta ári. Sagði hann að Orkuveitunni hefði gengið erfiðlega í samningaviðræðum við EIB. Eins og mál stæðu ríkti því nokkur óvissa um Helguvíkurverkefnið.
Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Maðurinn skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Máttu tæma lónið Innlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Fleiri fréttir Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Sjá meira