Innlent

Þingmenn ekki lögsóttir vegna orða sinna

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Þingmenn verða trauðla lögsóttir vegna ummæla sinna. Mynd/ GVA.
Þingmenn verða trauðla lögsóttir vegna ummæla sinna. Mynd/ GVA.
Það er ómögulegt að höfða mál gegn þingmanni vegna ummæla hans í þinginu nema að þingið gefi sérstakt leyfi til þess að undangenginni atkvæðagreiðslu.

Það vakti athygli að Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, fór hörðum orðum um ívilnanir stjórnvalda vegna fyrirhugaðra fjárfestinga Novators, félags Björgólfs Thors Björgólfssonar, í gagnaveri á Reykjanesi. Spurði Birgitta Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra hvort hún teldi að Björgólfur Thor Björgólfsson ætti ekki að skila þýfinu sem hvarf af Icesave reikningunum sem hann bæri beina ábyrgð á.

Vísir hefur óskað eftir viðbrögðum frá Björgólfi Thor vegna ummælana í gegnum upplýsingafulltrúa hans, en engin svör hafa fengist. Hins vegar er ljóst að stjórnarskráin meinar Björgólfi að höfða mál vegna ummælanna. Í 49. grein segir að enginn alþingismaður verði krafinn reikningsskapar utan þings fyrir það sem hann hafi sagt í þinginu nema Alþingi leyfi.

Lögfræðingur sem Vísir talaði við segir að þessa reglu megi túlka þannig að einhver sitjandi þingmaður, eða sá sem ummælin lytu að, þyrfti að óska eftir því við forseta að hann bæri fram i þinginu ósk um leyfi fyrir því að höfða mál gegn þingmanninum. Ef meirihluti þingsins kysi með tillögunni gæti viðkomandi lögsótt þingmanninn.






Tengdar fréttir

Eignarhlutur Björgólfs Thors verði þynntur út

„Það sem þetta verkefni snýst um er einfaldlega þetta. Ætlum við að láta alla fjárfestinguna fara forgörðum út af fortíð og sögu eins minnihlutaeigenda í þessu fyrirtæki eða ætlum við að stuðla að því að það geti gerst að það komi nýtt fjarmagn inn í þetta verkefni og að þessi aðili sem hér er um rætt verði þynntur út?" Þetta sagði Katrín Júlíusdóttir í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag.

Birgitta: Blaut tuska framan í almenning

Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, segist hafa fengið jákvæð viðbrögð við máli sínu á Alþingi í morgun. Þar lét þung orð falla þegar að hún spurði iðnaðarráðherra hvort hún teldi að Björgólfur Thor Björgólfsson ætti ekki að skila þýfinu sem hvarf af Icesave reikningunum sem hann bæri beina ábyrgð á. Birgitta var að spyrja ráðherra um lagafrumvarp um gagnaver á Vaðlaheiði sem lagt fram á þingi í fyrradag.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×