Stuðningsmenn Liverpool fóru illa með United-mann (myndband) 17. febrúar 2009 10:08
Breska blaðið Daily Express sagði um helgina ótrúlega sögu af því hvernig tveir gramir stuðningsmenn Liverpool náðu sér hrottalega niður á stuðningsmanni Manchester United sem reitti þá til reiði. Stuart Slann var giftur stuðningsmaður Manchester United sem hitti tvo stuðningsmenn erkifjendanna í Liverpool þegar hann var í fríi í Mexíkó. Þeir fóru að tala um knattspyrnu og þótti Liverpool-mönnum Stuart vera full ánægður með sig og gengi United. Fór svo að mennirnir tveir, sem eru báðir bardagamenn að atvinnu, ökkla- og rifbrutu Stuart óvart þegar þeir köstuðu honum í sundlaug eftir að hann sagði þeim að United væri betra lið en Liverpool. Einhver hefði nú haldið að tvímenningarnir hefðu látið sér segjast, en þeir voru ekki hættir. Þeir stofnuðu Facebook-síðu í nafni stúlku sem þeir kölluðu Emmu og létu þessa Emmu hafa samband við Stuart og senda honum lokkandi skilaboð. Svo spenntur var Stuart að hann lagði undir sig 600 kílómetra ökuferð til Skotlands til að hitta téða Emmu eftir að hún bauð honum í heimsókn. Þegar Stuart kom loks á staðinn þar sem Emma átti að búa, var enginn þar, en hann fékk skilaboð þess efnis að hún hefði tafist í vinnunni. Hann beið í nokkra klukkutíma fyrir framan húsið þegar hann loks gafst upp og hringdi í Emmu. Þá svaraði ekki hin huggulega Emma í símann heldur ruddalegur karlmaður með Liverpool-hreim og fljótlega áttaði Stuart sig á því að hann hefði verið gabbaður. Liverpool-mennirnir tveir höfðu náð að gabba Stuart til að senda Emmu myndband af sér á símann þar sem hann nartar í draumaprins sem hann ætlaði að nota til að gleðja stúlkuna. Það fylgir sögunni að kona Stuart hafi komist að Facebook-ævintýri bónda síns og hafi farið frá honum. Þessi hrikalega fýluferð Stuart var tekin upp og hefur afraksturinn nú verið settur á netið. Smelltu hér til að horfa á myndband sem Liverpool-mennirnir tóku saman um grínið, þar sem m.a. má hlusta á símtalið milli Stuart og "Emmu"
Enski boltinn Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Sjá meira