Fjármál frambjóðenda skoðuð aftur til 2006 Magnús Már Guðmundsson skrifar 7. júlí 2009 10:20 Frá Alþingi Mynd/GVA
Stjórnmálaflokkarnir munu á næstunni ganga frá samkomulagi sem felur í sér að þeir safni saman upplýsingum um fjármál frambjóðenda sinna aftur til ársins 2006. Samkvæmt heimildum fréttastofu felur samkomulagið jafnframt í sér að gerð verði úttekt á fjármálum flokkanna fyrir árin 2002 til 2007. Í kjölfar umræðu skömmu fyrir þingkosningarnar í vor um styrki til Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Framsóknarflokks skipaði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, nefnd sem ætlað var að endurskoða lög um fjármál stjórnmálaflokkanna og frambjóðenda þeirra. Nefndinni, sem skipuð er fulltrúum allra flokka, var jafnframt falið að fjalla um hugmyndir Jóhönnu um að gerð yrði úttekt á fjármálum þeirra allt til ársins 1999.Formennirnir funduðu í síðustu viku Heimildir meðal nefndarmanna herma að vinnu nefndarinnar hafi miðað vel áfram og að formenn stjórnmálaflokkanna hafi hist sérstaklega í síðustu viku til að ræða málið. Skoðanir hafi þó verið skiptar um hversu langt aftur úttektin eigi að ná, en þeim aðilum sem henni er ætlað að ná til er ekki skylt að geyma bókhaldsgögn í meira en sjö ár aftur í tímann. Gögnum skilað til Ríkisendurskoðunar Samkvæmt samkomulaginu sem er í burðarliðnum munu flokkarnir kalla eftir upplýsingum frá frambjóðendum sínum allt aftur til sveitarstjórnarkosninganna 2006 og þingkosninganna ári síðar. Þeim gögnum sem og ársreikningum og bókhaldsgögnum flokkanna fyrir árin 2002 til 2007 munu þeir skila inn til Ríkisendurskoðunar með svipuðum hætti og er nú gert samkvæmt lögum sem tóku gildi 1. janúar 2008. Ríkisendurskoðun mun í framhaldi birta fyrir árslok útdrátt úr gögnunum með samræmdum hætti.
Tengdar fréttir Fjármálin líklega skoðuð sjö ár aftur í tímann Óvíst er hversu langt aftur í tímann fjármál stjórnmálaflokka og stjórnmálamanna verða skoðuð en líklega verður miðað við árið 2002. Forsætisráðherra vill að gerð verði úttekt sem nær aftur til ársins 1999. 15. júní 2009 11:35 Mest lesið Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Sjá meira
Fjármálin líklega skoðuð sjö ár aftur í tímann Óvíst er hversu langt aftur í tímann fjármál stjórnmálaflokka og stjórnmálamanna verða skoðuð en líklega verður miðað við árið 2002. Forsætisráðherra vill að gerð verði úttekt sem nær aftur til ársins 1999. 15. júní 2009 11:35