Viðskipti innlent

Erna Bjarnadóttir nýr stjórnarformaður Nýja Kaupþings

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Erna Bjarnadóttir er nýr stjórnarformaður Nýja Kaupþings. Mynd/ E. Ól
Erna Bjarnadóttir er nýr stjórnarformaður Nýja Kaupþings. Mynd/ E. Ól

Erna Bjarnadóttir verður nýr stjórnarformaður Nýja Kaupþings í stað Huldu Dóru Styrmisdóttur. Þá mun Theodór Sigurbergsson taka sæti í stjórninni í stað Auðar Finnbogadóttur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nýja Kaupþingi en eins og greint var frá í dag skrifuðu skilanefnd bankans, bankinn og ríkið undir samninga þess eðlis að skilanefnd fyrir hönd kröfuhafa gefst kostur á að eignast um 87% hlutafjár í Nýja Kaupþingi á móti ríkissjóði.

Í nýrri stjórn bankans, sem skipuð er fulltrúum ríkisins og skilanefndarinnar sitja: Erna Bjarnadóttir stjórnarformaður, Helga Jónsdóttir, Drífa Sigfússdóttir, Jónína Sanders, Jóhannes Rúnar Jóhannsson og Theodór S. Sigurbergsson. Úr stjórn hverfa Hulda Dóra Styrmisdóttir stjórnarformaður og Auður Finnbogadóttir.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×