Innlent

Benjamín: Mætti að halda að dómarinn og Ragnar séu frændur

Benjamín Þór Þorgrímsson, sem einnig er þekktur sem Benni Ólsari, er ósáttur með fjórtán mánaða fangelsisdóm sem hann hlaut í dag fyrir þrjár líkamsárásir. Hann er búinn að áfrýja dómnum til Hæstaréttar.

„Það mátti búast við hinu versta þar sem Símon grimmi átti hlut að máli," segir Benjamín en Símon Sigvaldason héraðsdómari kvað upp dóminn. Benjamín telur að Símon hafi ekki farið nægjanlega vel yfir málið. „Það mætti halda að hann og Ragnar séu frændur."

Benjamín var dæmdur í fjórtán mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir árásirnar. Ein líkamsrárásin, á Ragnar Magnússon athafnamann, var tekin og sýnd í fréttaskýringaþættinum Kompási. Auk fjórtán mánaða fangelsis var Benjamín dæmdur til að greiða 865 þúsund krónur í sakarkostnað.




Tengdar fréttir

Ákærum gegn Benjamín Þór vísað frá dómi

Tveimur ákærum á hendur Benjamín Þór Þorgrímssyni líkamsræktarþjálfara var vísað frá í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Benjamín Þór var ákærður fyrir líkamsárás á Ragnar Ólaf Magnússon. Árásin var sýnd í Kompásþætti um handrukkanir á Íslandi í haust.

Brunabíla-Ragnar dæmdur til að greiða fimm milljónir

Fyrrum skemmtistaðaeigandinn Ragnar Magnússon, stundum kallaður Brunabílaragnar, var dæmdur, ásamt konu, bróður og föður, til þess að greiða Ölgerð Egils Skallagrímssonar fimm milljónir vegna ógreiddra reikninga.

Benni Ólsari dæmdur í 14 mánaða fangelsi

Benjamín Þ. Þorgrímsson var í dag dæmdur í fjórtán mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir þrjár líkamsárásir. Ein líkamsrárásin, á Ragnar Magnússon athafnamann, var tekin og sýnd í sjónvarpsþættinum Kompási. Þá var Benjamín dæmdur til að greiða 865 þúsund krónur í sakarkostnað.

Benni Ólsari vill tíu milljónir

„Þetta mál er fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Prófmál og engin furða að þessir menn séu að míga á sig. Hætt að sýna Kompás og allt enda þeir búnir að kúka upp á bak þessir pappakassar,“ segir Benjamín Þór Þorgrímsson – betur þekktur sem Benni Ólsari.

Ofbeldisatriði úr Kompási – óklippt útgáfa

Um fátt hefur verið meira rætt undanfarinn sólarhring en Kompásþátt sem sýndur var í gær. Í þættinum er sagt frá heimi handrukkara. Þá var sagt frá deilum þeirra Benjamíns Þ. Þorgímssonar líkamsræktarmanns og Ragnars Magnússonar. Þær enduðu með því að Benjamín réðst að

Vilhjálmur undirbýr kröfuna á hendur Kompási

Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður Benjamíns Þórs Þorgrímssonar, segist vera að vinna að stefnunni á hendur 365 hf. sem hann hefur boðað. Í Kompásþætti fyrir tveimur vikum var sýnt myndskeið af samskiptum Benjamíns og Ragnars Magnússonar, sem enduðu með því að Benjamín lét hendur skipta. Hann segist búast við því að málið verði höfðað innan mánaðar.

Hafnar því að 365 sé skaðabótaskylt vegna Kompásþáttar

Einar Þór Sverrisson, lögmaður 365, hafnar því að fyrirtækið sé skaðabótaskylt verði Kompásþáttur sem sýnir líkamsárás meints handrukkara á annan mann sýndur í kvöld. Þetta kemur fram í bréfi sem lögmaðurinn hefur ritað lögmanni hins meinta handrukkara.

Benni Ólsari ákærður fyrir Kompás-árás

Benjamín Þ. Þorgrímsson hefur verið ákærður fyrir að ráðast á Ragnar Ólaf Magnússon á bílastæði við Hafnarvogina við Hafnarfjarðarhöfn.

World Class sver af sér Benjamín

Benjamin Þ. Þorgrímsson, sem fjallað var um í Kompási á mánudagskvöld, starfar ekki lengur hjá World Class. Þetta kemur fram í tilkynningu sem World Class sendi frá sér fyrir stundu.

Þingfestingu í ákæru á hendur Benjamín Þór aftur frestað

Fresta varð í morgun í annað sinn á skömmum tíma þingfestingu í máli ákæruvaldsins á hendur Benjamín Þór Þorgrímssyni líkamsræktarþjálfara fyrir að hafa hótað og barið Ragnar Ólaf Magnússon. Fjallað var um árásina í Kompásþætti fyrr í haust þar sem tekinn var fyrir heimur handrukkara.

Benjamín Þór ákærður aftur

Benjamín Þór Þorgrímsson, líkamsræktarþjálfari, verður að öllum líkindum ákærður á nýjan leik fyrir líkamsárás, að sögn Jóns H. B. Snorrasonar saksóknara og aðstoðarlögreglustjóra lögreglu höfuðborgarsvæðisins. ,,Ég á ekki von á öðru en gefin verði út ný ákæra.

Kompásárás hefði getað leitt til heilaskaða

Maður leitaði nýlega til slysadeildar Landspítalans brotinn á fótum - að eigin sögn eftir aðfarir handrukkara með hafnarboltakylfu. Þetta segir Ófeigur Þorgeirsson yfirlæknir slysa- og bráðadeildar. Hann segir að árásin sem sýnd var í Kompási hefði getað leitt til heilaskaða.

Vísar ásökunum um sviðsetningu á bug

Ritstjóri fréttaskýringaþáttarins Kompás vísar ásökunum Benjamíns Þórs Þorgrímssonar, meints handrukkara, alfarið á bug um að umdeilt myndskeið í þætti gærkvöldsins hafi verið sviðsett æsifréttamennska.

Benjamín Þór: Mjög sáttur með frávísun

,,Ég er mjög sáttur með þessa niðurstöðu og ég vona að réttlætið sigri að lokum," segir Benjamín Þór Þorgrímsson líkamsræktarþjálfari um niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur að vísa frá tveimur ákærum á hendur honum.

Líkamsárás í fyrsta Kompásþætti vetrarins

Benjamín Þór Þorgrímsson, líkamsræktarþjálfari og meintur handrukkari, hefur verið ákærður fyrir að ráðast á Ragnar Ólaf Magnússon fyrrum veitingamann. Fjallað verður um líkamsárásina í fréttaskýringaþættinum Kompási eftir fréttir Stöðvar 2.

Hart deilt á saksóknara í Kompáss - árásarmálinu

Verjandi Benjamíns Þórs Þorgrímssonar, sem ákærður hefur verið fyrir að ganga í skrokk á Ragnari Magnússyni, eins og frægt varð þegar fréttaskýringaþátturinn Kompás náði atvikinu á myndband, sakar lögreglu um að hafa klúðrað ákærunni á hendur skjólstæðingi sínum. Hinn málsaðilinn, Ragnar Magnússon, tekur í svipaðan streng og segir að lögregla hafi týnt ákærum sem hann lagði fram gegn Benjamíni í kjölfarið á því að Benjamín réðst að honum.

Benjamín Þór: Ég er fórnarlambið

Benjamín Þór Þorgrímsson, líkamsræktarþjálfari, segist vera fórnarlamb Kompás og lögð hafi verið fyrir hann gildra. ,,Ég tel mig vera fórnarlambið. Ragnar er bara píslarvottur og tálbeita þeirra til að gera spennandi þátt fyrir þjóðina," segir Benjamín. Spurður hvort að lögð hafi verið fyrir hann gildra segir Benjamín: ,,Já, það er bara þannig."

Vinsælustu fréttir Vísis árið 2008

Árið 2008 fer líklega í sögubækurnar sem eitt viðburðarríkasta árið í sögu þjóðarinnar. Hvort fall Lehman brothers eða óhóflegar lánveitingar til tengdra aðila komu okkur í hóp með Simbabve og fleiri góðum er hinsvegar ekki vitað.

Ragnari Magnússyni var líka hótað um helgina

Ragnar Magnússon athafnamaður segir að sér hafi borist líflátshótanir um helgina. Hann segist telja að Benjamin Þ. Þorgrímsson, líkamsræktafrömuður og einkaþjálfari, standi að baki hótunum sem honum og Jóhannesi Kr. Kristjánssyni, ritstjóra Kompáss, hafi borist.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×