Fótbolti

Ísland fellur á lista FIFA

NordicPhotos/GettyImages

Íslenska landsliðið hefur fallið niður um 18 sæti á nýjasta styrkleikalista FIFA sem birtur var í dag. Liðið situr í 93. sæti listans, en Evrópumeistararnir frá Spáni verma áfram toppsætið.

Íslenska landsliðið er það lið sem fellur mest á nýútkomnum lista, en Belgar og Tapei fara niður um 13 sæti. Íslenska liðið tapaði fyrir Færeyjum og Skotlandi frá því síðasti listi var birtur.

Hér fyrir neðan má sjá tíu efstu þjóðirnar á listanum:

1. Spánn

2. Þýskaland

3. Holland

4. Brasilía

5. Ítalía

6. Argentína

7. England

8. Króatía

9. Rússland

10. Frakkland






Fleiri fréttir

Sjá meira


×