Erlent

Þrettán ára launmorðingi Mexíkómafíu

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Gabriel Cardona, félagi Rosalios.
Gabriel Cardona, félagi Rosalios. MYND/Lögreglan í Laredo

Rosalio Reta situr við borð í litlu yfirheyrsluherbergi lögreglunnar í Laredo í Texas. Hann er að svara spurningum rannsóknarlögreglumanns um það hvernig morðferill hans hafi byrjað.

Reta og einn drengur til eru í haldi lögreglunnar eftir að hafa verið handteknir fyrir nokkur morð. Þeir eru báðir bandarískir en starfa fyrir mexíkóska eiturlyfjabaróna og ryðja úr vegi fólki sem barónarnir telja sig þurfa að losna við Bandaríkjamegin við landamærin. Þriðji drengurinn var í hópnum en sá var handtekinn í Mexíkó og stunginn til bana eftir aðeins fárra daga dvöl í þarlendu fangelsi.

Reta segir lögreglumanninum að hann hafi aldrei upplifað betri tilfinningu en þegar hann skaut mann til bana í fyrsta skiptið. Þau skipti urðu enda fleiri því þremenningarnir eru grunaðir um að minnsta kosti sjö morð í Laredo, sem er á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. Lögregla taldi málin fyrst óskyld en náði svo að tengja þau saman. Upplýst er að drengirnir fengu tugi þúsunda dollara auk kókaíns að launum fyrir hvert morð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×