Viðskipti innlent

Gjaldeyrisforði SÍ rýrnaði um 120 milljarða á tíu mánuðum

Gjaldeyrisforði Seðlabankans hefur rýrnað um rúma hundrað milljarða króna á síðustu tíu mánuðum eða því sem nemur láni Alþjóðagjaldeyrissjóðsins til íslands. Bankinn notaði rúman hálfan milljarð króna í síðustu viku til að styrkja gengi krónunnar um 3 prósent en óvíst er að sú styrking haldi.

Tæplega 40 milljarða króna afgangur var á vöruskiptum við útlönd á fyrstu sjö mánuðum þessa árs samkvæmt tölum Hagstofunnar. Þrátt fyrir þetta hefur krónan verið að veikjast á þessu ári og þá sérstaklega í ágústmánuði.

Í síðustu viku notaði Seðlabankinn fjórar milljónir evra eða um 600 milljónir króna til að styrkja gengi krónunnar um 3 prósent. Það er fullkomlega óvíst hvort þetta inngrip dugi til að styrkja krónuna til langframa en lítil breyting varð á gengi krónunnar í dag.

Jón Bjarki Bentsson, sérfræðingur í gjaldeyrismálum hjá Íslandsbanka, segir að Seðlabanki Íslands hafi ekki mikið svigrúm til að styrkja gengi krónunnar með þessum hætti. „Því lengra sem líður og höftin eru við lýði því meira kostar þetta. Gjaldeyrisforðinn sem við höfum er takmarkaður og þó að það fari ekki ýkja mikið í mánuði hverjum þá er sá tími sem við höfum til að beita þessari peningamálastefnu takmarkaður," segir Jón Bjarki.

Gjaldeyrisforði Seðlabankans hefur rýrnað um 120 milljarða króna á síðustu tíu mánuðum. Þetta jafngildir því að Íslendingar séu þegar búnir að nýta fyrsta hluta láns Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og 20 milljörðum betur.

Seðlabankinn gefur út nýjar tölur um stöðu gjaldeyrisforðans á miðvikudag.

Jón Bjarki segir að veruleg vaxtagjöld til útlendinga skýri afhverju krónan hefur ekki náð að styrkjast þrátt fyrir hagstæð vöruskipti.

„Svo er það hinn þátturinn er að gjaldeyristekjurnar eru ekki að skila sér inn í krónum. Útflytjendur eru að veigra sér við að selja gjaldeyrinn og skipta honum í krónur og svo er ekki útilokað að menn séu að fara í kringum höftin."

 

 
















Fleiri fréttir

Sjá meira


×