Níu ára drengur rekinn úr fótboltaliði 14. ágúst 2009 05:45 Drengurinn æfði með sjötta flokki ÍR í fótbolta þar til um miðjan júlí, þegar foreldrum hans barst bréfið um að ekki væri hægt að leyfa honum að æfa eða spila vegna hegðunar hans. Mynd/Vilhelm
Níu ára gamall drengur hefur verið rekinn úr 6. flokki ÍR í fótbolta vegna hegðunarvandamála. Hann má því ekki mæta á æfingar hjá félaginu. Foreldrar hans voru látnir vita af brottrekstrinum í bréfi. Móðir hans gagnrýnir þetta harðlega. Að sögn Halldórs Þ. Halldórssonar, yfirþjálfara yngri flokka ÍR, var þetta síðasta úrræði félagsins. „Vegna hegðunar á æfingum og í leikjum, þetta er síendurtekin vanvirðing gagnvart dómurum, forráðamönnum og þjálfurum. Það er búið að reyna til fullnustu að vinna með hann.“ Hann segir félög oft hafa þurft að beita þessu úrræði. Þau hafi ekki jafnmörg úrræði og skólar. „Hann er skapstór ungur drengur – með mikið keppnisskap,“ segir Agnes Linda Þorgeirsdóttir, móðir drengsins. Hún segir að upp hafi komið atvik þar sem hann hafi rokið upp, bæði á æfingum og þegar hann er að keppa. Hún hafði viðrað þá hugmynd við þjálfarann í júní að láta drenginn hætta í fótbolta um stund. Þá hafi verið stungið upp á því að frekar ætti að prófa að setja drenginn í eldri flokk, þar sem meiri agi væri. „Ég skil ósköp vel að það er erfitt að vera með drenginn í fótbolta þegar hann er svona skapstór, þetta er hópíþrótt. Mér hefði bara fundist allt í lagi að funda með okkur og reyna allavega að finna lausn.“ Þau Halldór hafi talað saman um málið tveimur vikum fyrir Shell-mótið, sem er haldið í Vestmannaeyjum í lok júní ár hvert. „Meðal annars sagði þjálfarinn við mig að það gæti verið að hann fengi ekki að fara með á mótið út af þessu.“ Að sögn Halldórs var ákveðið að gefa drengnum síðasta tækifærið. Hann fékk að fara með á Shell-mótið, en þurfti að vera undir forsjá föður síns allan tímann og gista hvorki né dveljast með hinum drengjunum. „Svo kom upp atvik á mótinu sjálfu, hann skammaðist í einhverjum dómara, svo maður var alveg búinn undir að eitthvað myndi gerast. Hann fór samt og baðst afsökunar,“ segir Agnes. Hinn 15. júlí hafi þau svo fengið bréf um að barna- og unglingaráði knattspyrnudeildar ÍR hafi borist erindi um hegðun hans eftir Shellmótið. Þar hafi þeir aðilar sem komið hafi að málinu verið spurðir álits og farið yfir eldri atvik. Foreldrarnir voru þó ekki boðaðir á þennan fund. Að sögn Halldórs voru það aðrir foreldrar sem lögðu fram erindið. Í bréfinu kemur einnig fram að mögulegt verði að endurskoða ákvörðun knattspyrnudeildarinnar eftir áramót, ef hegðun hans hafi breyst til muna.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Innlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Innlent Fleiri fréttir Sífellt fleiri sprauta sig með ólöglegu efni til að fá brúnni húðlit Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Sjá meira