Hækkun álverðs mikið ánægjuefni fyrir orkufyrirtækin í landinu 14. ágúst 2009 05:00 Hækkun álverðs hefur ekki mikil áhrif á daglega starfsemi Norðuráls en gæti hækkað lánshæfismatið. Mynd/GVA
Verðið á áli hefur hækkað um 59 prósent frá því í mars og kostaði tonnið 1.997 dali í gær. „Þetta er mikið ánægjuefni fyrir orkufyrirtækin og hefur jákvæð áhrif á tekjurnar,“ segir Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landsvirkjunar. Lánshæfismat Landsvirkjunar lækkaði nýlega og er í neikvæðu horfi innanlands. Stefán segir hækkandi álverð ekki hafa áhrif á lánshæfismatið til skemmri tíma en geti gert það yfir lengri tíma. Stóra málið varðandi lánshæfismat Landsvirkjunar er hins vegar það að lánshæfismat ríkisins er mjög lágt, að sögn Stefáns. Hæst hefur álið verið í 3.263 dölum á tonnið og var það í júlí í fyrra. Eftir heimskreppuna síðasta haust tók álið mikla dýfu og var tonnið í 1.473 dölum um áramótin. Álið var í sögulegu lágmarki í mars, í 1.257 dölum á tonnið, en fór stigvaxandi og var í 2.006 dölum á mánudaginn. Ágúst F. Hafberg, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og samskipta hjá Norðuráli, segir hækkandi álverð ekki hafa mikil áhrif á daglega starfsemi félagsins en auki hins vegar tekjurnar og það sé gott. „Sveiflur í álverði eru alþekktar og menn eru undirbúnir fyrir þær,“ segir Ágúst. Ágúst segir hækkun álverðs geta hækkað lánshæfismat Norðuráls en matið sé nú þegar sterkt, því fyrirtækið sé skuldlaust.
Mest lesið Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Lögregla klippti á plöturnar Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent Fleiri fréttir Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Veðrið haggist ekki að neinu ráði Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Bílvelta í Skötufirði Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Sjá meira