Keane er þriðji dýrasti leikmaður sögunnar 3. febrúar 2009 16:47 Robbie Keane hefur kostað 73 milljónir punda samanlagt á ferlinum NordicPhotos/GettyImages
Robbie Keane er kominn upp fyrir Hernan Crespo á lista dýrustu leikmanna sögunnar þegar tekið er mið af því hve há upphæð hefur verið borguð fyrir þá samanlagt á ferlinum. Daily Mail tekur í dag saman lista yfir þá leikmenn sem keyptir hafa verið fyrir mest fé yfir ferilinn og er Keane nú kominn upp fyrir framherjann Hernan Crespo sem áður lék m.a. með Chelsea. Það er eftir sem áður franski framherjinn Nicolas Anelka sem trjónir á toppi listans, en fyrir hann hafa samtals verið greiddar 84,8 milljónir punda ef marka má samantekt Daily Mail. Anelka var fyrst keyptur til Arsenal frá PSG fyrir 500 þúsund pund en liðið græddi tæpar 22 milljónir punda á honum þegar það seldi hann til Real Madrid nokkru síðar. Hann hefur síðan verið á mála hjá PSG, Man City, Fenerbahce, Bolton og nú síðast Chelsea. Næstur kemur argentínski miðjumaðurinn Juan Sebastian Veron sem hóf feril sinn hjá Boca Juniors en var keyptur þaðan til Sampdoria á Ítalíu. Þar í landi lék hann síðar með Parma og Lazio áður en hann var keyptur fyrir 28 milljónir punda til Man Utd og lék síðar með Chelsea. Alls hafa rúmar 76 milljónir punda skipt um hendur í þessum félagaskiptum kappans. Robbie Keane er nú kominn í þriðja sæti listans og hefur kostað 73 milljónir punda í heildina skv Daily Mail. Hann var ungur keyptur til Coventry frá Wolves fyrir 6 milljónir punda en fór þaðan til Ítalíu þar sem Inter borgaði 13 milljónir punda fyrir hann. Þaðan fór hann aftur til Englands þar sem hann hefur spilað með Leeds, Tottenham og Liverpool. Argentínumaðurinn Hernan Crespo hóf ferilinn hjá River Plate en var keyptur til Parma á ítalíu fyrir 2 milljónir punda. Þaðan var hann keyptur til Lazio á metfé, 35,5 milljónir punda. Frá Lazio fór hann til Inter og var loks keyptur til Chelsea þar sem hann var leystur undan samningi í fyrra. Hann er nú leikmaður Inter og er eini maðurinn í sögu Meistaradeildarinnar sem skorað hefur mark með fimm liðum í keppninni. Alls hefur Crespo kostað tæpa 71 milljón punda á ferlinum.
Enski boltinn Mest lesið Joshua kjálkabraut Paul Sport Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn Gagnrýndi Paul: „Beið eftir að verða sleginn“ Sport Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Rekinn af HM eftir að hafa fallið á lyfjaprófi Sport Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Enski boltinn Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Enski boltinn „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ Handbolti Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Fótbolti Dagskráin í dag: Enski boltinn í tíu klukkutíma Sport Fleiri fréttir Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Man. City - West Ham | Bláklæddir geta tyllt sér á toppinn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Alexander Isak fékk sænska gullboltann „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Man United ósátt við Marokkó og FIFA Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Garnacho skaut Chelsea áfram í undanúrslit Vísa á bug fullyrðingum Bruno sem hafa valdið fjaðrafoki Hlaut 21 árs dóm fyrir að aka inn í skrúðgönguna í Liverpool Bjarni segir Newcastle stærra félag en Tottenham Moyes ældi alla leiðina til Eyja Sjá meira