Crespo var enginn labbakútur 19. febrúar 2009 16:31 Hernan Crespo var ekkert "flopp" að mati blaðamanns Times NordicPhotos/GettyImages
Pistlahöfundurinn Gabriele Marcotti hjá Times skrifar áhugaverðan pistil á netsíðu blaðsins í dag. Í pistlinum furðar Marcotti sig á því af hverju kaup Chelsea á Argentínumanninum Hernan Crespo séu almennt álitin einhver verstu kaup í sögu félagsins. Rétt er að nafn Crespo hefur átt það til að dúkka upp þegar talað er um stórstjörnur sem keyptar hafa verið dýru verði til Englands. Hann er enda einn af dýrustu leikmönnum sögunnar þegar heildarkaupverð hans er lagt saman. Crespo kostaði vissulega skildinginn þegar Chelsea keypti hann fyrir tæpar 17 milljónir punda frá Inter Milan á Ítalíu, en þeir sem gagnrýna hann fyrir lélega markaskorun verða líklega að athuga málið betur. Crespo náði aldrei að festa sig almennilega í sessi hjá Chelsea og ekki þótti honum enski maturinn góður, en það kom ekki í veg fyrir að hann mætti í vinnuna. Argentínumaðurinn spilaði 2812 mínútur í úrvalsdeildinni og skoraði á þeim tíma 20 mörk samkvæmt úttekt Marcotti. Það gerir mark á hverjum 140 mínútum eða þar um bil. Betra markahlutfall en Robinho og Ronaldo Þegar þessi tölfræði er svo borin saman við helstu markaskorara úrvalsdeildarinnar í dag, kemur í ljós að Crespo var hreint ekki að gera slæma hluti. Þannig hefur markahæsti leikmaður deildarinnar, Nicolas Anelka hjá Chelsea, skorað mark á hverjum 139,5 mínútum. Það er mjög svipað markahlutfall og Crespo var með hjá Chelsea á sínum tíma. Þeir Robinho hjá Chelsea (1 mark á 157 mín), Cristiano Ronaldo hjá Man Utd(1 mark á 160 mín) og Gabriel Agbonlahor hjá Aston Villa (1 mark á 223 mín) eru svo með lakara markahlutfall en Crespo. Það er því líklega rétt sem Marcotti skrifar í pistli sínum. Ætli sér einhver að kalla Crespo "flopp" eða slæm kaup, er það líklega full djúpt í árina tekið þó leikmaðurinn hafi kostað væna fúlgu á sínum tíma.
Enski boltinn Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Serbía - Ísland | Mæta Jokic í gini úlfsins Körfubolti Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti Man. City verður meistari Sport Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Enski boltinn „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Körfubolti Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Handbolti „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ Körfubolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Fleiri fréttir Crystal Palace - Manchester City | Erfiður leikur fyrir ernina Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Sjá meira