Veiðistjórnun skilar tilætluðum árangri 23. september 2009 06:00 Rjúpnastofninn náði fimm til sex milljónum fugla þegar best lét. Stofninn var aðeins 60 þúsund fuglar fyrir fáum árum. fréttablaðið/gva „
Uppsveiflan byrjaði í fyrra og heldur áfram núna. Þetta er góð ávöxtun síðustu tvö árin og ánægjuleg,“ segir Ólafur K. Nielsen, vistfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands. Rjúpnastofninn sýnir mikil batamerki og vöxtur stofnsins takmarkast ekki lengur við einstaka landshluta. Fækkunarskeið rjúpunnar sem hófst árin 2005/2006 er afstaðið og stofnvöxtur sem náði nær eingöngu til austanverðs landsins í fyrra tekur nú til landsins alls. Meðaltalsaukning fyrir öll talningasvæði rjúpu var 26 prósent tímabilið 2008/2009. Heildarstærð varpstofnsins í vor var 225 þúsund fuglar og veiðistofninn eftir sumarið er talinn vera 810 þúsund fuglar. Þetta er mikill árangur á stuttum tíma því í samanburði við árið 2007 hefur varpstofninn tvöfaldast. Ekki þarf heldur að fara lengra aftur en til áranna 2002/2003 til að finna varpstofn í sögulegu lágmarki sem var þá metinn um 60 þúsund fuglar. Má geta þess að rjúpnastofninn er talinn hafa verið fimm til sex milljónir fugla þegar best lét. Ólafur segir að þegar uppsveifla hefst í rjúpnastofninum hérlendis þá vari hún í þrjú til fimm ár. „Það er vonandi að sú verði raunin nú, en hrunið er síðan óumflýjanlegt innan þeirrar tíu ára sveiflu sem einkennir þennan stofn og er náttúrulegt fyrirbæri.“ Veiðistjórnun á rjúpu sem nú er viðhöfð er þríþætt. Sölubann, takmörkun veiðidaga og hvatning til veiðimanna um hófsemi. Ólafur telur að sátt hafi náðst um þessa tilhögun og að aldrei verði aftur snúið til veiðihátta á rjúpu sem tíðkaðist lengi. „Ég held að það verði ekki snúið til baka. Það sem þá ól á græðginni var markaður með fuglinn. Þá gátu menn sameinað skemmtilega útiveru og gróðavonina. Fyrir 2002 tíðkuðust blóðug fjöldadráp oft á tíðum sem ég trúi ekki að verði nokkurn tíma leyfð aftur.“ Sigmar B. Hauksson, formaður Skotveiðifélags Íslands, gerir viðsnúning rjúpnastofnsins að umtalsefni í nýjasta tölublaði félagsins. Þar segir hann að því verði ekki á móti mælt að veiði hefur áhrif á rjúpnastofninn, en lengi var því haldið fram að svo væri ekki. Áhrifin séu lítil á heildarstofninn en hafi meiri áhrif næst þéttbýli. Þetta sýni rannsóknir í nágrannalöndum. Hann samsinnir Ólafi um að veiðistjórnun á rjúpu sé í góðum farvegi, sem megi þakka samstarfi stjórnvalda og veiðimanna, og að siðbót veiðimanna sé staðreynd. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Önnur sprunga opnast Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Innlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Fallegt og ekkert smágos Innlent Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Erlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Innlent Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Innlent Fleiri fréttir Varað við fölsuðum töflum sem innihalda hættulega efnablöndu Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Sjá meira