Grunnur lagður að nýrri sókn í íslensku atvinnulífi Gunnar Örn Jónsson skrifar 24. júlí 2009 17:49 Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, og Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra. Mynd/GVA
Ríkisstjórnin hefur samþykkt að unnið verði áfram að verkáætlun um hvernig best verði lagður grunnur að nýrri sókn í íslensku atvinnulífi og samfélagi. Verkefnið er liður í efnahagslegri endurreisn þjóðarinnar og hefur að markmiði að Ísland skipi sér á ný í fremstu röð í verðmætasköpun, menntun, velferð og sönnum lífgæðum. Áætlunin hefur fengið nafnið „20/20 - Sóknaráætlun fyrir Ísland." Dagur B. Eggertsson er formaður stýrihóps þessa verkefnis en aðrir sem hópinn skipa eru; Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra, Karl Björnsson framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarfulltrúi á Akureyri, og Svafa Grönfeldt, rektor HR. Gert er ráð fyrir að fleiri ráðherrar komi að verkefninu og taki þátt í störfum hópsins þegar fram líða stundir. Ríkisstjórnin mun á þessu ári verja 10 milljónum króna af sameiginlegu ráðstöfunarfé sínu til verkefnisins. Verkefnið sem unnið verður í víðtæku samráði á næstu mánuðum, felst í því að draga fram styrkleika og sóknarfæri þjóðarinnar og gera tillögur og áætlanir á grunni þeirra.Áhersla um breiða samstöðu um sameiginlega framtíðarsýn Lögð verður áhersla á að ná breiðri samstöðu um sameiginlega framtíðarsýn og lykilákvarðanir í endurreisnarstarfinu. Markmiðið er að forgangsraða fjármunum, nýta auðlindir og virkja mannauð þjóðarinnar til að vinna gegn fólksflótta og leggja grunn að almennri velsæld. Auk þess að leggja grunn að nýrri atvinnustefnu verður við undirbúning sóknaráætlunar sérstaklega kallað eftir hugmyndum um endurskipulagningu í opinberri þjónustu, stjórnkerfi og stjórnsýslu. Þá verður gerð tillaga að nýrri skiptingu landsins í svæði til að skapa viðspyrnu í endurreisnarstarfinu og stuðla að sterku samfélagi og vænlegum lífsgæðum til framtíðar. Unnið verður að því að samþætta og aðlaga fjölmargar áætlanir ríkisins að breyttum áherslum, þar með talið í samgöngumálum, fjarskiptamálum, menntamálum, menningarmálum, nýsköpun, nýtingu orkulinda, umhverfismálum, landskipulagsmálum, ferðamálum og byggðamálum auk áætlana um eflingu sveitarstjórnarstigsins.Samráðshópar í öllum landshlutum Skipaðir verða samráðshópar í öllum landshlutum og unnar samþættar áætlanir fyrir hvert svæði um sig sem hafa sameiginlega skírskotun til eflingar atvinnu, menntunar og opinberrar þjónustu innan svæðisins. Þannig getur orðið til ný skipting landsins í svæði sem hvert um sig stefnir að sameiginlegum markmiðum til samfélagslegrar uppbyggingar. Stýrihópurinn hefur unnið drög að verkefnisáætlun sem skiptist í nokkra meginþætti og fela meðal ananrs í sér víðtækt samráð um mótun valkosta fyrir framtíðina og þau gildi sem liggja eiga til grundvallar framtíðarsýn íslensku þjóðarinnar. Þá verður sérstaklega hugað að lykilþáttum sem aukið geta samkeppnishæfni landsins. Gert er ráð fyrir verkefnið hefjist formlega á haustdögum og ljúki haustið 2010 þegar fyrir liggi framtíðarsýn og sóknaráætlun sem nái til ársins 2020.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Fleiri fréttir Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Glæný könnun og þungavigtarfólk í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Sjá meira