Innlent

Breiðavíkursamtökin segjast engan trúnað hafa brotið

Frá Breiðavík.
Frá Breiðavík.

Lögfræðingur forsætisráðuneytisins, Páll Þórhallsson, fullyrti á fundi með stjórnarmönnum Breiðavíkursamtakanna og Ragnari Aðalsteinssyni, lögmanni þeirra, 11. ágúst síðastliðinn að frumvarpsdrögin um bætur hefðu verið kynnt í ríkisstjórn og samþykkt þar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Breiðavíkursamtökin sendu frá sér nú undir kvöld. Í yfirlýsingu sem forsætisráðuneytið sendi frá sér fyrr í dag kemur hins vegar fram að drög að frumvarpinu hefðu ekki verið kynnt í ríkisstjórn.

Beðið um trúnað í tvær vikur

Þá segir í yfirlýsingunni að á sama fundi hafi Breiðavíkursamtökin verið beðin um trúnað í tvær vikur. Það hafi verið virt og rúmlega það. Ragnar Aðalsteinsson lögfræðingur hafi síðan verið boðaður á fund í ráðuneytinu föstudaginn 29. ágúst. Greinilegt hafi verið af þeim fundi að dæma að málinu hafði verið haldið í sama farvegi og á fundinum 11. ágúst. Engu hefði verið hnikað til þótt samtökin hefðu gert alvarlegar athugasemdir við drögin strax á fundinum 11. ágúst og með ítarlegu bréfi þann 15. ágúst. Við svo búið hafi Breiðavíkursamtökin ekkert séð því til fyrirstöðu að efna til félagsfundar 3. september og taka þátt í opinberri umræðu um málið og þróun þess.

Harma framgöngu forsætisráðuneytisins

Þá segir að Breiðavíkursamtökin geti ekki annað en harmað framgöngu forsætisráðuneytisins í þessu máli og hvetji forsætisráðherra til að koma böndum á framgöngu sinna manna. Breiðavíkursamtökin hafi engan áhuga á því að munnhöggvast við ráðuneytið um atriði sem ekki lúti að kjarna málsins. Hann felist ekki síst í brotum stjórnvalda gagnvart börnunum og foreldrum þeirra, í því líkamslega og andlega harðræði sem þessi börn hafi búið við, í þeirri vinnuþrælkun sem þessum börnum hafi verið boðið upp á, í þeirri vanrækslu sem hafi átt sér stað á lögbundinni skólaskyldu, í sviptingunni á friðhelgi einkalífsins og í hinni sáru einangrun og aðskilnaði frá vinum og venslamönnum sem börnin hafi þurft að þola. Af öllu þessu sé ljóst að hin ömurlega nauðungarvist hafi rýrt verulega tækifæri og getu viðkomandi einstaklinga til að lifa eðlilegu, mannsæmandi lífi og fóta sig í samfélaginu.




















Fleiri fréttir

Sjá meira


×