Benitez gagnrýndi mig í körfubolta 28. mars 2008 16:23 NordcPhotos/GettyImages
Spænski landsliðsmaðurinn Alvaro Arbeloa segist ekki hafa átt sjö dagana sæla þegar hann hóf að leika með Liverpool. Hann segist hafa verið lengi að venjast ströngum starfsaðferðum knattspyrnustjórans Rafa Benitez. "Ég vissi ekki hvar ég var fyrstu dagana og það var eins og allt færi úrskeiðis. Mér fannst þjálfarinn gagnrýna mig fyrir allt - meira að segja þegar ég var að spila körfubolta á æfingu," sagði Arbeloa, sem spilaði sinn fyrsta landsleik fyrir Spánverja gegn Ítölum á miðvikudagskvöldið. Arbeloa var keyptur til Liverpool frá Deportivo á Spáni fyrir 2,5 milljónir punda fyrir rúmlega ári síðan, en hefur tekist að fóta sig eftir þessa skelfilegu byrjun. "Mér fundust fyrstu tvær vikurnar hjá Liverpool ómanneskjulegar, en svo útskýrði stjórinn sem betur fer fyrir mér hvernig hlutirnir virka hérna. Sumir segja að Benitez sé fúllyndur en ég hef aðeins einu sinni séð hann þannig. Hann er samt alvörugefinn maður og það er eðlilegt því menn eru að reyna að ná árangri," sagði Arbeloa. Hann segir Steven Gerrard og Jamie Carragher vera leiðtoga Liverpool - hvor á sinn hátt. "Jamie er leiðtoginn í búningsherberginu, skipar mönnum fyrir og lætur þá heyra það. Hann heyrir líka allt og lætur okkur hina vita. Steven Gerrard er líka mikilvægur. Hann er eins og Zinedine Zidane - snillingur sem forðast sviðsljósið og lætur verkin tala á vellinum," sagði Arbeloa í samtali við Daily Mail.
Enski boltinn Mest lesið John Cena hættur að glíma Sport Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag Enski boltinn „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ Fótbolti Segir Norðmönnum að setja hana í karlalandsliðið sitt Handbolti Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö Enski boltinn Þjálfari Orra Steins látinn fara Fótbolti Lunga NFL-stjörnu féll saman eftir nálastungumeðferð Sport Valin kona ársins í akstursíþróttum á sautján ára afmælisdaginn Formúla 1 Hundrað ára vaxtarræktarkappi Sport Völsungar ráða ævintýramann sem þjálfara Sport Fleiri fréttir Crystal Palace - Manchester City | Heimsækja bikarmeistarana Nottingham Forest - Tottenham | Tengja gestirnir saman sigra? Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag „Stundum þarf maður heppni“ Tvö sjálfsmörk færðu Arsenal fimm stiga forkost á toppnum „Verstu 48 klukkustundirnar“ síðan að hann kom til Chelsea Fulham vann í markaleik á Turf Moor Ian Rush lagður inn á sjúkrahús „Kannski áttum við heppnina skilið í dag“ „Ég held að þetta hafi ekki verið kveðjustund“ „Þegar þú spilar fyrir Liverpool verðurðu bara að vinna leiki“ Salah lagði upp í endurkomunni en Ekitike sá um mörkin Palmer skoraði í fyrsta sinn síðan í september Mesta heillaskref ferilsins að hafa verið rekinn Varalesturinn flæktist fyrir þýska tvíeykinu „Held að ég gæti ekki hætt í fótbolta“ Salah snýr aftur eftir sáttafundinn Isak tæpur og Gakpo frá Rooney var hótað lífláti eftir að hann fór til Man Utd Slot fundar með Salah í dag: „Mun ákvarða hver næstu skref verða“ „Liverpool hefði ekkert unnið ef það væri ekki fyrir Mo Salah“ Kærasta Haaland hefur fengið nóg Girti niður um liðsfélagann í markafagni Skuldir Man United nú meira en 127 milljarðar Tóku hetjuna með sér í Evrópuleikinn Af hverju spila ekki fleiri konur Fantasy? Býður Salah velkominn til Sádi-Arabíu Mjög hættulegur vítahringur að mati Arteta Henry ekki hrifinn af hegðun Arsenal-manna í leikslok Sjá meira