Enski boltinn

Óvíst að Neville nái að spila á leiktíðinni

NordcPhotos/GettyImages

Varnarmaðurinn Gary Neville hjá Manchester United viðurkennir að hann sé ekki of bjartsýnn á að ná að spila með aðalliði félagsins á þessari leiktíð. Hann hefur ekki spilað leik með United í meira en ár vegna meiðsla.

"Ég er búinn að spila þrjá leiki með varaliðinu og það er besta rispan mín til þessa síðan ég meiddist. Ég verð hinsvegar lengi að ná mér í toppform á ný en það get ég aðeins gert með því að halda áfram að æfa með aðalliðinu. Vonandi fæ ég leik áður en leiktíðin er á enda, en þetta er ekki besti tíminn til að koma hægt inn í þetta þar sem allir leikir framundan eru mjög mikilvægir," sagði Neville.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×