Robson safnar fé til krabbameinsrannsókna 26. mars 2008 14:27 NordcPhotos/GettyImages
Sir Bobby Robson er að mestu hættur afskiptum af knattspyrnu en það þýðir ekki að hinn 75 ára gamli fyrrum landsliðsþjálfari Englendinga sé aðgerðalaus. Robson hefur staðið í stríði við krabbamein undanfarin ár og greindist nýverið með krabba í fimmta sinn. Útlitið er ekki gott að þessu sinni, en sá gamli hefur þó ekki sagt sitt síðasta. Læknar á Freeman sjúkrahúsinu í Newcastle spurðu Robson á sínum tíma að því hvort hann þekkti fjársterka aðila til að leggja til fé í nýja deild við sjúkrahúsið. Robson tók þessari beiðni sem áskorun og ákvað að koma á fót sjóði sem ber nafn hans. Hann stefnir að því að safna um hálfri milljón punda til að hægt verði að reisa sérstaka rannsóknardeild við Freeman sjúkrahúsið. Robson hefur þegar fengið velyrði fyrir styrkjum frá gamla félaginu sínu Newcastle og grannar þeirra fyrir norðan, Middlesbrough og Sunderland eru sögð hafa tekið vel í það þegar Robson leitaði til þeirra. Sterkasta dæmið um þann hug sem er í fólki í kring um átakið var þegar kona nokkur bankaði á dyrnar hjá Robson á annan í páskum og rétti honum umslag með tæplega 275 pundum. Hún hafði nýverið misst mann sinn úr krabba og bað gesti við útförina að gefa peninga frekar en blóm og lét þá alla renna í Robson-sjóðinn. Robson er ekki mikið fyrir að trana sér fram og þess síður að sníkja peninga, en hann segir tilefnið gott og því sé hann til í að halda áfram. "Þaðan sem ég kem var til máltæki sem sagði að feimið barn fengi ekki neitt. Þetta er kannski ekki sérstaklega fallegt máltæki en ég held að það eigi við í þessu tilfelli. Ég kann illa við að biðja um peninga, en ef maður spyr ekki - þá fær maður líklega ekki neitt," sagði Robson í samtali við Times.
Enski boltinn Mest lesið Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Haukar halda sigurgöngunni áfram Handbolti Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Fótbolti Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Handbolti Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Fótbolti KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Handbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira